Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Blaðsíða 28

Eimreiðin - 01.04.1924, Blaðsíða 28
156 ÞEGAR F0NNIN HVARF EIMREIÐiN kyrð ríkti í herberginu, einhuer dularfullur friður, sem honum fanst hann ekki hafa tekið eftir áður. En þetta varaði að eins örstutt. Konan hans hafði hreyft sig og opnað augun. »Ert það þú, Friðrik?« sagði Hildur og strauk ábreiðuna Iaust með hvítri, horaðri hendinni. »Var nokkur þörf á að sækja mig heim frá fénu?« Friðrik svaraði í gamla, önuga kulda og ónota rómnum, sem var orð- inn honum svo tamur upp á síðkastið. Honum lá við að hreyta út úr sér einhverjum ónotum af gömlum vana, en hon- um fanst það einhvern veginn ekki eiga við í þetta skifh þarna inni, »Hvar er Grímsi litli ?« spurði Hildur eins og hún tseki ekki eftir því, sem Friðrik sagði. »Hvar heldurðu að hann sé nema hjá fénu«, var rétt kom- ið fram á varirnar á Friðrik, en hann stilti sig og sagði ekkert. »Eg fer nú bráðum að kveðja ykkur«, sagði Hildur þá og brosti veiklulega framan í mann sinn. Friðrik svaraði engu. Það var kominn einhver kökkur • hálsinn á honum svo honum varð örðugt um mál. Hrukkurn- ar á þreytulega andlitinu á honum fóru að mýkjast, og drætt' irnir í munnvikjunum urðu skarpari. «Heyrðu, vinur minn«, sagði Hildur alt í einu, reis til hálfs upp í rúminu og leit fast á mann sinn. »Sérðu eftir því, að þú giftist mér?« Það var nokkur ákefð í röddinni. »Nei, Hildur, Hvers vegna dettur þér slíkt í hug nú?* Friðrik kraup á kné við rúmið, tók utan um herðarnar a Hildi og horfði framan í hana hálf óttasleginn. »Mér hefur stundum dottið það í hug nú síðustu árin«> sagði Hildur og lokaði augunum. »Hún hefur stundum komið að mér eiris og óvættur þessi hugsun og ekki látið mig 1 friði. Marga nóttina hef ég ekki getað sofið fyrir henm- Stundum hef ég læðst fram úr rúminu og sest á rúmstokkinn hjá Grímsa og Dísu litlu, horft á blessuð litlu andlitin og hlustað eftir andardrætti þeirra. Það hefur friðað mig. Þú manst þegar þú fanst mig sofandi á rúmstokknum þeirra einn morguninn. En svo hefur óvætturin komið aftur og aftur«- Friðrik mælti ekki orð frá vörum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.