Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1924, Page 19

Eimreiðin - 01.04.1924, Page 19
-IMREIÐIN EINAR BENEDIKTSSON 147 crangurslaust — sjálfan sig. Heima á bænum verður fyrir ^anni hin sama makt myrkranna: Ogæfu þrungin og ygld á brá sig yfir húsþekjur breiðir dauðamóksvættur, er drungann frá dauflegri óttu seiðir. Undan fargi þessa ógæfu drunga brýst svo skyndilega fram °9nin viðnámslaus, yfirlúkandi, ráðlaus —: Hvert mannsbarn vaknar og horfir í húm. Enn er hrópað í ógn og trylling. Líkamir naktir rúm við rúm rfsa í titrandi hrylling. Skelfingar áhrif hinnar ramauknu þjóðsögu fá styrk og fyll- ln9u, nýtt magn af listborinni framsetning kvæðisins, sem er nærri eins dæmi. I kvæðinu Skýjafar dregur skáldið upp mynd drungalegs ó- ^ðurkvelds við Trasimenusvatnið — hinn forna vígvöll Hanni- Dals. Hinn dapurlegi blær sennunnar leiðir hugann beint að ,ragiskum örlögum fornhetjunnar. Áhrifin eru sterk og sam- fara —: Vatnsins djúpu andvörp óma yfir vígvöll Hannibals. Brimföll í þess ekka hljóma eins og flótti í kveini vals. Sem um torg frá borg til b.orgar berist hraðfrétt slysa og sorgar storms fer gnýr frá strönd til fjalls. Lýsingar Einars Benediktssonar af hámenning tímans og stórmerkjum hennar illum og góðum styðst við þessa sömu lsí- Þannig gefur hann okkur myndir, sem eru öldungis ein- stakar í bókmentunum. Tempsá, Kirkjan í Milano, Sólarlag, "larsmidjur o. fl. Hér er ný braut rudd og glæsilega af stað farið. Ekki verður annars vart en að tungan reynist hon- Uln töm þótt viðfangsefnin séu óvanaleg. Má þar til nefna "'Vasðið Dísarhö/I, þar sem hann lýsir leik hljómsveitar í einni st®rstu sönghöll heimsins —: 1 básúnum stynur nú stormsins andi, og stórgígjan drynur sem brimfall á sandi. I trumbu er bylur með hríðum og hviðum,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.