Eimreiðin - 01.10.1944, Side 82
306
ÖRLÖG OG ENDURGJALD
eimreiðin
andlegu veru, sem hlýtur heit-
ið: „Verndari engla og alls,
sem lifir og hrærist.“
Hinn mikli landkönnuður
Sven Hedin liefur skýrt frá enn
háleitari veru en Dalai Lama,
og sé sú vera þekkt undir nafn-
inu Taslii Lama. Vera þessi er
í Tibet talin að vera sjálfur
Buddha, endurholdgaður hér á
jörð.
Kunnugt er, hversu trú Tibet-
búa á endurholdgun hefur haft
mikil áhrif á afstöðu þeirra til
jarðneskra auðæfa. Landið er
ákaflega gullauðugt, en lands-
menn eru gersamlega áhuga-
lausir fyrir kaupmætti þessa
gulls. Þeir telja það engu
skipta fyrir velferð lífs síns,
séð frá sjónarmiði endurlioldg-
unarkenningarinnar, hvort þeir
eigi stórar lirúgur gulls
eða ekki. Hugmynd Buddha-
trúarmannsins um, hvernig
miða skuli líf sitt við fortíð
og framtíð er mjög lík hug-
mynd Pytliagorasar. Hún
grundvallast á hinni fornu trú
um hringrás tímans, sem við
hvern snúning flytur aftur til
jarðar nýjar sálir úr fortíðinni,
sem sífellt „fara upp og niður
stigann“, eftir því, hvort þær
breyta vel eða illa. Smnar
sækja á brattann, aðrar hrasa
■—• og „réttlátt og óskeikult er
örlaganna hjól, svo aldrei
skeikar hársbreidd.“
Þannig reynast menn þá
sinna eigin örlaga smiðir. Ó-
skeikulleika þess boðskapar
lýsir Edward Young, höfundur
kvæðisins „Nætur-liugsanir ,
en það kvæði mun flestum nú
gleymt:
Ver sjálfs þín véfrétt, þekktu
þína framtíð,
og þá mun hverfa bitur dauð-
ans broddur.
Þér, sannleiksfjendur! Fylgi®
þessu ráði
og treystið öruggt spámanni og
presti.
Sjálft flónið fær ei flúið lífsins
veg.