Eimreiðin - 01.07.1949, Síða 42
EIMREIÐIN
Vestan hvitra fjalla.
Ef finnst þér götur borgarinnar þyngja þína lund
og þröngt vera um sál og hugsun alla,
— þá mundu, að þín bíða hin bláu, lygnu sund
á breiðum firði vestan hvítra fjalla.
Þar æðarfuglinn kyrrlátur á vogi vaggar sér
í vestanblæ um heiðan ágúst-daginn,
og frjóar hlíðar dalsins breiða faðminn móti þér,
— þú finnur þar í skjóli gamla bæinn.
Þú finnur litlar tóftir í túnfætinum þar
og týndar hjarðir kúskelja og horna,
því hér er það sem æsku þinnar óðal forðum var
í anganhvömmum bjartra sumarmorgna.
Ef vinum þínum fækkar og förlast gæfuleit
og fjarlægt enn til þinna vonahalla —
þá mundu, að þín bíður hin bjarta, víða sveit
hjá breiðum firði vestan hvítra fjalla.
Ragnar Jóhannesson.
Heim til þín.
Hve löng hver stund og langur dagur hver,
sem líður fjærri þér,
sú ósk: að komast aftur heim til þín
veit engin bönd — er sterkust löngun mín.
Hver heiði er löng, er frá þér burt ég fer,
hver ferð er stutt þá ég á heimleið er,
og þýðari hver bylgja, blárri sær,
er ber mig fley þér nær.
Ég fegins hendi dyrustaf þinn strýk
og staldra snöggvast áður en hurð upp lýk,
það er svo gott að fá að fagna því
að finna þig á ný.
J
Ragnar Jóhannesson.