Eimreiðin - 01.04.1952, Blaðsíða 50
122
STRAUMAR ISLANDS
EIMREIÐIN
ráð íslands á hafinu. Það virðist því auðsætt, að tilsk. 12. febrúar
1872 var ekki ætlað að taka til straumanna eða yfirráða Islands
á sjónum, enda eru í almenna þjóðaréttinum ekki til nokkur
ákvæði um breidd þeirra. Og straumar Islands eða víðátta þeirra
lá ekki fyrir til umræðu. En þótt straumarnir hefðu verið til
umræðu, er varla liklegt, að menn hefðu lagt mikið kapp á það
að svipta Island yfirráðarétti sínum yfir þeim, þar sem fiski og
veiði þar var frjáls útlendum sem innlendum utan landhelginnar,
þ. e. utan fiskimarkanna.
I 1. gr. tilsk. 12. febrúar 1872 er gert ráð fyrir samningum
um breidd landhelginnar, og er þeir samningar loksins komu,
brezk-danski samningurinn 24. júní 1901, þá hljóðar hann aðeins
um fiskihelgina, um landhelgi i merkingunni fiskimörk eða eins
og það orð merkti upphaflega, ekki um yfirráðarétt Islands yfir
sjónum eða strauma Islands. Straumar Islands og yfirráð Islands
yfir hafinu mun þar ekki nefnt á nafn.
Þetta ætti að vera nægilegt til að sýna það, að með tilskipun
12. febrúar 1872 var ekkert ákveðið um strauma Islands, og þeir
héldu áfram að vera með sömu breidd og víðáttu og þeir voru
áður.
En til þess að sýna það enn ljósara, hvað átt sé við með land-
helgi í 1. gr. tilsk. 12. febrúar 1872, skal ég taka upp nokkur
orð framsögumanns nefndarinnar um frumvarp konungs á al-
þingi 1871:
„Ég skal geta þess, að viðvíkjandi því, sem konungsfulltrúi
sagði, að landhelgin væri eigi ákveðin í íslenzkum lögum, þá er
það satt, að hún er eigi ákveðin í tilsk. 13. júní 1787, en það er
til önnur eldri tilskipun, nefnilega tilskipunin 15. ágúst 1763, og
þar er hún ákveðin, því í 4. grein hennar segir: „Saa maa og
Ingen, hverken vore egne Undersaatter eller Andre bruge nogen
Doggeri omkring Island nærmere end 4 Mile rundt omkring
uden for Landet under Skib og Godses Fortabelse, hvor det an-
træffes.“
Eins og allir geta séð, er hér um að ræða fiskimörk, en ekki
yfirráðasvæði Islands eða kommgs á hafinu. Og í stað þessara
fiskimarka frá 1763 eiga landhelgisákvæðin í 1. gr. tilsk. 12.
febrúar 1872 að koma og eru því aðeins fiskimörk, eða er að-
eins ætlað að vera það.