Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1952, Side 84

Eimreiðin - 01.04.1952, Side 84
156 RITSJÁ EIMUEIÐIN legu vali þeirra, niðurröðun og fyrir- sögnum. Svo og ágætum skýringum. Hafi hann beztu þökk fyrir og verð- ugt lof. Þorsteinn Jónsson. Saren Seland: 20 NORSKE DIKT- ERE GJENNOM 15 AAR. Oslo 1950. (Norsk Bokhandler-Med- hjelper-Forening). Bók þessi er yfirlitsrit um valda norska rithöfunda á 15 ára tímabil- inu 1934—1949 og fyllir autt skarð, þar sem hinar miklu bókmenntasög- ur þeirra Elsters og prófessoranna Bull, Paasche og Winsnes ná eigi lengra en fram til þess tíma. Höfundur ofan nefndrar bókar, Soren Seland, er málfræðingur að menntun og lektor við Vestheim skólann í Osló, en hefur síðan 1940 kennt norskar bókmenntir við Bók- salaskólann (Bokhandlerskolen) þar í borg; er bókin sérstaklega samin sem handbók fyrir nemendur þess skóla, en jafnframt þannig vaxin um inni- hald og efnismeðferð, að innan tak- marka sinna getur hún komið hverj- um þeim að góðum notum, er kynn- ast vill norskum bókmenntum frá síðari árum; geri ég ráð fyrir, að þeir séu eigi allfáir í hópi lesenda þessa tímarits og Islendinga almennt. 1 gagnorðum inngangi rekur höf- undur í megindráttum menningar- og bókmenntastrauma í Noregi ó ár- unum fyrir heimsstríðið síðara, á sjálfum stríðsárunum, og órunum sið- an stríðinu lauk. Dvelur hann að vonum við djúpstæð áhrif striðsár- anna á viðhorf norskra rithöfunda og norskar bókmenntir, vikur síðan að hinum bókmenntalega jarðvegi al- mennt í landi þar og hinni eldri og yngri skáldakynslóð. Er inngangur þessi, þó í stuttu máli sé, bæði greinagóður og fróðlegur, og getur þar margra skálda og rithöfunda, sem eigi koma við sögu að öðru leyti í bókinni sjálfri, vegna þess hvernig höfundur hennar hefur takmarkað viðfangsefni sitt. Hann fjallar um 20 norska samtíð- arhöfunda, aðallega sagnaskóld, eða um þá hliðina á rithöfundarstarfsemi þeirra söguskálda, er jafnframt hafa lagt stund á aðrar greinar bókmennt- anna, svo sem leikrita- og ljóðagerð. Hefur hann annarsvegar valið viðui'- kennd öndvegisskáld, en hinsvegar höfunda, er að einhverju leyti skera sig úr í norskum samtíðarbókmennt- um. Verða skoðanir vitanlega jafnan skiptar um slíkt val, en mér virðist það yfirleitt hafa vel tekizt. 1 fyrri hluta bókarinnar ræðir höf- undur stuttlega um nokkra hina kunnustu rithöfunda í hópi hinnar eldri kynslóðar, er gáfu út ný rit og merkileg á umræddu tímabili; eiga þar hlut að máli þessi skáld: Olav Duun, Sigrid Undset, Johan Falk- berget, Sigurd Christiansen, Tarjei Vesaas, Ronald Fangen, Sigurd Hoel, Helge Krog og Nordahl Grieg. í meginmóli ritsins tekur Seland lektor síðan til ýtarlegri meðferðar eftirfarandi rithöfunda: Cora Sandel, Arthur Omre, Gunnar Larsen, Johan Borgen, Aksel Sandemose, Andreas Markusson, Magnhild Haalke, Inge Krokann, Hans Geelmuyden, Sigurd Evensmoe og Arne Vaagen, er allii' eiga sammerkt um það að hafa orðið fastir í sessi með ritverkum sínum a þessum árum. Er því í ritinu augsýnilega að finna ýmsa þá höfunda, sem hæst gnæfa í norskum samtíðarbókmennt- um, samhliða fulltrúum hinna fjar-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.