Eimreiðin - 01.05.1964, Blaðsíða 82
J. M. Eggertsson — Skuggi:
Einn stafur — eitt orð
„Eitt bros getur dimmu í dagsljós
breytt
sem dropi breytir veig heillar
skálar“.
eins getur einn misritaður eða mis-
prentaður bókstafur I rími eða riti
breytt teikningu listaverksins á þá
leið, að mismunandi smíðagallar
verða á byggingunni er valdið geta
höfundinum miklum áverka, jafn-
vel sært hann nær ólæknandi sári.
Einsteypt og heilsteypt, hægsorf-
ið og seinfægt skal það vera, sem
vel er vandað og lengi á að standa.
Svo er og um ferskeytluna, sé hún
fullkomin. Ferskeytlan á helzt að
vera eins og andartak, engin grein-
armerki, engir punktar, engar
kommur og sízt af öllu að vísunni
sé skipt í tvær samlokur eins og oft
er gert. Slik ferskeytla er ekki heil-
steypt listaverk, enda þótt góð sé,
eða jafnvel ágæt það sem hún nær.
Samlokuvísa nær ekki göfgi hinnar
sönnu hrynjandi og særir brageyrað
svipað og fölsk nóta í fögru tón-
verki.
Samlokuvísa, sem vel er gerð,
samsvarar skelinni, perlumóður-
inni, sem fóstrar perluna og umlyk-
ur hana, en ekki perlan sjálf.
Fullkomin ferskeytla er sem
fægður gimsteinn eða skínandi
perla, óumbreytanleg og eilíf með-
an heimurinn stendur, meðan hug-
ur og hjarta haldast við og tunga
er töluð. Sviflétt og óþvinguð flýg'
ur hún um hugann eins og andar-
tak fagnaðar og gleði:
Bláa skeiðar himins hind
hálofts breiða vegi
til að greiða lá og lind
Ijós af heiðum degi.
I síðustu Eimreið, í janúar-apríl
heftinu 1964, er einn bókstafur
misprentaður í kvæðinu „Morð
Kennedys" eftir „Skugga“. Þar hef-
ur í 1. vísu, 3. ljóðlínu, misprent-
ast einn bókstafur: m í staðinn fyr'
ir n. Þar af leiðandi liefur I rítni
vísunnar skipst um orð: dögum i
í staðinn fyrir dögun, sem er hið
upphaflega rétta. Þessi eini mis-
prentaði bókstafur skiptir um orð
og gefur ranga mynd af hugsun og
bygging kvæðisins; gerir meinloku
í kvæðinu, er verkar sem krabba-
mein og særir höfundinn djúpn
sári.
Orðið dögun gefur allt aðra
mynd og merking en nafnorðið
dagur í þolfallsorði fleirtölu, sem
táknast með orðinu „dögum“. — ~~
Rétt er vísan svona:
Er leið vor hófst var fyrsta neista
fleygt
af fáki liimna — þá er skeið var
teygt