Eimreiðin - 01.01.1975, Page 5
Inngangur
EIMREIÐIN
LANDNÁMSMAÐUR Á 20. ÖLD
Davíð Oddsson sendi Eimreiðinni eftirfarandi pistil fyrir
skömmu. Þar sem orð hans eru nátengd líðandi stundu, vill
Eimreiðin hefja ferð sína 1975 með því að gera þau að sínum.
Sennilega hefur sagnfræðingum ekki orðið á meiri skyssa
en að lýsa því yfir, að landnámsöld hafi lokið fyrir nokkrum
hundruðum ára. Samtímasöguskýringar og öll skynsamleg rök
benda til þess, að landnámsöld standi enn. Ytri einkenni þjóð-
lífsins hniga og í þá átt. Hér belgist verðbólga, sem á ekki sinn
líka nema á tímum landnema og gullgrafara í villta vestrinu,
meðan það var og hét. í þjóðmálum og menningarmálum vaða
uppi sjónhverfingamenn og illvirkjar rétt eins og á slíkum
tímum. Umhrotin eru sams konar. Blaðasöludrengir verða bíla-
kóngar, og sá, sem var sjálfstæðismaður í fyrradag, krati í
gær, í samtökunum í morgun, formaður útvarpsráðs síðdegis
— hann skrifar í Þjóðviljann á morgun. Fangelsi halda ekki
nokkrum manni, sem liefur innilokunarkennd og vill ekki vera
þar. Þjófar og aðrir ribhaldar mæta reglulega í handtökur hjá
lögreglunni á mánudögum og föstudögum, en ræna og rupla
þess á milli í uppmælingu og akkorði. Maður á liausnum í
gær hefur starfsemi á morgun með yfirdrætti í sama banka og áð-
ur og steypist síðan heint á hausinn aftur, eins og skáldið komst
að orði. Meginhluti landsins sjálfs er ónuminn. Allur þorri ibú-
anna hangir á bláþræði allt landið um kring. Flestir þeirra
sinna ekki öðru veturlangt en látlausri kleppsvinnu við snjó-
mokstur, svo að hægt sé að sækja landbúnaðarafurðir eins
langt að og kostur er og koma niðurgreiðslunum í staðinn
heim í hlað til bænda. Enn er landið andlegu myrkviði vaxið
5