Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Síða 13

Eimreiðin - 01.01.1975, Síða 13
EIMREIÐIN anfarin ár hafa liins vegar leitt til óvæntra niðurstaðna, og er ekki laust við, að hjá nokkrum í þeirra hópi gæti svartsýni um árangur jafnaðarstefnunnar, sem fylgt liefur verið á Vest- urlöndum undanfarna áratugi7. Mikla athygli hefur vakið, að rannsóknir á tekjudreifingu í löndum Efnahags- og framfara- slofnunarinnar O.E.C.D. virðast sýna, að hún er engu jafnari nú en fyrir 25 árum. Sérfræðingar O.E.C.D. komast svo að orði i nýlegri skýrslu, að þess sjáist ekki merki í handbærum hag- tölum, að hlutur þeirra tekjulægstu í skiptingu þjóðartekna hafi aukist þrátt fyrir mikið umtal og miklar tilfærslur í pen- ingum og fríðu. Og á öðrum stað segjast þeir ekki geta fundið ótvíræð merki um almenna þróun i jafnaðarátt í O.E.C.D.-löndum8. Slíkum niðurstöðum má ekki taka fyrir- varalaust, eins og höfundar viðurkenna fúslega. Gögn eru yfirleitt léleg og oft sótt í skattframtöl, og hagtölur eru notað- ar, sem svara ekki til fræðihugtakanna, sem með réttu ætti að mæla. Meðaltöl fvrir heildina eru fáorð um fjölbreytnina, sem undir býr. Nefna má sem dæmi, að á 25 árum hefur fjölgað mikið þvi námsfólki, sem vinnur með námi hluta úr venju- legu starfsári, og einnig rosknu fólki, sem fær eftirlaun og elli- bætur, en vinnur jafnframt hluta úr degi. Lágar frumtekjur þessa fólks gera heildardreifinguna ójafnari. Áliugavert væri að rannsaka betur dreifingu ráðstöfunartekna, neyslu og frí- stunda. Geta má þess og, að enn er á reiki, hvaða tekjuhugtak er heppilegast að nota, — mánaðartekjur, árstekjur, ævitekjur eða núvirði ævitekna, — en niðurstöður geta oltið á því, hvert þessara hugtaka er notað. í O.E.C.D.-löndum eru skattar um 35% af vergri þjóðarfram- leiðslu, allt frá 22% í Japan til 50% i Belgíu. Á íslandi mun þetla hlutfall nú vera um 36%, þar af kemur 29% i hlut ríkis- ins, en um 7% renna til sveilarfélaga. Skattheimta getur því haft mjög mikil jöfnunaráhrif á frumtekjur, ef skattar eru stighækkandi. Tekjuskattur er almennt talinn hafa mest áhrif á tekjudreifinguna, en í grannlöndum er allt að lielmingur op- inherra gjalda innheimtur með tekjuskatti. 1 fjárlögum fyrir árið 1975 er hins vegar áætlað, að tekjuskattur einstaklinga •iemi aðeins um 12% af tekjum islenzka rildsins. Rannsóknir á raunverulegri skatthyrði liafa leitt i ljós, að í framkvæmd er stighækkun tekjuskattsins minni en skattstiginn sýnir, vegna þess að efnafólk getur notfært sér hetur en aðrir ýmsar undan- þágur og frádráltarliði. Svo mun vafalaust einnig vera hér á landi9. öbeinir skattar, sem á íslandi standa undir um 80% af tekj- 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.