Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Page 15

Eimreiðin - 01.01.1975, Page 15
ÉIMREIÐIN núna og það ástand, sem yrði, ef ríkisbúskapurinn legðist af, því að þá mundu flestar forsendur nútímaþjóðfélags einnig bresta. Skynsamlegra er að taka fyrir einstök verkefni ríkis- ins og athuga, hvernig ábati og kostnaður af þeim skiptist milli ýmissa þjóðfélagshópa. Hagfræðingar hafa framkvæmt mikið af slíkum rannsóknum á undanförnum árum, og eru niðurstöður þeirra oft athyglisverðar. Meðal annars virðast rannsóknir á skólakerfum í nokkrum löndum benda til þess, að fátækir styðji ríka til náms14. IV. JÖFNUÐUR OG SKÓLARNIR. Sú skoðun hefur verið almenn, að aukin menntun og jafn- ari dreifing hennar hljóti einnig að jafna laun manna, ef nokk- uð hald er í kenningum hagfræðinga um fjárfestingu í mennt- un. Þetta hefur ekki gerst að því er virðist, og hafa því kenn- mgar, sem keppa við mannauðsfræði, fengið byr undir báða vængi. ! Christopher Jencks og félagar vöktu nýlega mikla athygli með bók sinni, lnequality: A Reassessment of ÍFamily and Schooling in America, en þar eru m. a. birtar niðurstöður töl- fræðilegra athugana, sem eiga að sanna, að skólaganga hafi htil sem engin áhrif á laun. Er því haldið fram, að 80% launa- mismunar séu komin undir heppni, en menntun skýri aðeins 10% launaójafnaðar og aðrir þættir, svo sem greind og staða föður, skýri þau 10%, sem afgangs eru15. Niðurstöður þessar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.