Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Side 40

Eimreiðin - 01.01.1975, Side 40
EIMREIÐIN við léð ej'ru romsu þessari, því hætt er við að töfin verði til að sefa bræði vora. Sveinar, fljótir nú, takið þennan mann og leiðið liann héðan, sendið liann niður í myrkur undirheima með liinum kvalafyllstu pyndingum“. Hinn týrrenski Akötes var þegar dreginn brotl og liann lokaður inni í rammgerum fanga- klefa. En sagt er, að meðan verið var að taka til hin skelfilegu morðtól, járnið og eldinn, þá hafi dyrnar lokizt upp sjálfkrafa og hlekkirnir fallið af höndum hans, án þess að nokkur leysti þá. En Ekkíonsson var óhagganlegur: nú sendir hann ekki aðra fyrir sig, en fer sjálfur í átt til Kvþeronsfjalls og rennur á hljóð- ið að þeim stað þar sem söngvar og skær hróp Bakkvnjanna kveða við. Likt og þegar vakur gæðingur heyrir gjallandi her- lúður blása til orrustu, þá hneggjar hann hátt og blæs af víga- móði, þannig æstist Penþeifur við veinin er fvlltu loftið og reiði hans hlossaði upp á ný, er hann heyrði hrópin. Á fjallinu miðju var auð flöt, umkringd slcógum, og mátti sjá inn á hana frá öllum liliðum. Fyrst til að sjá Penþeif son sinn, þar sem hann fylgdist með blótinu vanhelgum augum, fyrst til að rjúka að honum i æðiskasti verður móðir Iians. ,,.Tó, systur“, æpti hún, „komið báðar! Þennan risabjörn, sem villt- ist inn á okkar svæði, ætla ég mér“. Og öll hin tryllta hersing æðir á eftir honum einum, þær fylgdu henni allar og eltu hinn skelfda konung. Þvi nú var hann skelfdur, nú viðhafði hann engin gífuryrði, heldur for- mælti sjálfum sér og játaði glöp sín. Þótt hann væri særður, hrópaði hann: „Hjálpaðu mér nú, Atónóa frænka, minnstu nú þess, er hundarnir rifu i sig Akteon son þinn“. En hún mundi nú ekki lengur Akteon og sleit hægri handlegginn af þeim, sem bað hana hjálpar, en um leið reif Inó af hinn handlegginn. Nú hafði hann enga handleggi lengur, sem hann gæti teygt mót móður sinni, og gat ekki sýnt annað en sárin. þar sem hand- leggirnir liöfðu verið fastir við húkinn. „Sjáðu, móðir!“ kall- aði hann, en við jiá sjón rak Agava upp öskur, skók sig, svo að hárið flaksaðist til i vindinum, sleit höfuðið af hálsi sonar sins og hélt þvi i hendi sér með blóðugum fingrum og æpti: „,Tó, vinir, þennan sigur hef ég unnið“. Og líkt og vindurinn feykir af liáum trjám laufblöðum, sem kuldi haustsins hefur farið um og losað frá greinunum, eins fljótt slitu hinar trylltu hendur limina af Penþeifi. Þetta létu Þehudætur sér til varnaðar verða og fylgdu upp frá því hinum nýja sið, færðu brennifórnir og frömdu hlót á helgum ölturum. 40

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.