Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Page 53

Eimreiðin - 01.01.1975, Page 53
EIMREIÐIN Ætli gerfifóturinn góði sé gróinn við stúfinn eins og læknirinn hélt að gerast mundi ef ég yrði geggjaður eins og hann Ég vona að þokunni létti ég sé orðið ekkert fyrir léttu Orn hefur kallað sjálfan sig trúbadúr, enda bera ljóð hans þess víða vitni að þau eru ætluð til söngs. Oft líða ljóðin til- tinnanlega fyrir það, að þau eru beygð undir laglínur meira af l'andafli en kunnáttu. Sem skáldskapur verður pródúktið þá °ft anzi magurt, en gæti notið sín ágætlega við gítarsöng í kát- 11 m félagsskap. Einnig bættir Erni til að vera oft fullyrðinga- samur, þegar pólitík eða félagsmál eru á ferðinni, — bér gæti t'ann lært af Þórarni Eldjárn, hvernig lokka á lesandann út á tsinn. Hugmyndaflugið er sá burðarás sem heldur kafla Arnar uppi. Það er oft auðugt og ferskt, auk þess sem húmorinn leynir sér ekki. En Örn verður að aga sköpunargáfu sína og kynna sér t'etur bvað befur verið gert i Ijóðinu. Piíður nefnist síðari hluti Skotbljóðs og er eftir Jón Daníels- s°n. Jón yrkir viða um byltinguna í kvæðum sinum. Yrkisefnið fer mjög misjafnlega í höndum hans, en kvæðið á síðu 57, Hvlting, er bæði eftirminnilegt og vel gert. BYLTING Fólk? Stór jarðfastur steinn, ég? Lítill karl að grafa upp með teskeið að vopni. yeikleiki Jóns er sá sami og Arnar, hann fiktar við rim og tjóðstafi án þess að ráða nægilega vel við formið, og því verða Pessi gömlu hjálparmeðul oft til lýta. Fullkomlega laust form er sá stíll þar sem Jón nær beztum tökum á yrkisefninu. Tök- Um ljóðið Á vegum almættisins sem dæmi. 53

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.