Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1975, Page 68

Eimreiðin - 01.01.1975, Page 68
ElMREIÐlN alveg í rökkriö, en stúlkan vissi, að liann var i gulri skyrtu með brún axlabönd og ljósbrúnum vinnubuxum. Með þvi að ein- beita sér að mynd Gamalíels i huga sér bélt liún aftur af bugs- unum sínum. „Búinn,“ kallaði Larry. Stúlkan tiplaði fram með þróarbarminum. Hún staðnæmdist fyrir framan Gamalíel og liorfði á bann. Hann spurði: „Hafið þér séð ömbru?“ skælbrosti og kreisti svilin aftur af fiskinum ofan í fötu við fætur sér. „Ambra er svil hvalsins,“ sagði hann svo og bætti við: „Það eru sko svil.“ „Já, því trúi ég,“ svaraði Hallgerður. „Vellekla var ort af hrosskærum.“ „Hvað eigið þér við?“ Hún var lítið lesin. „Tunnan valt og úr henni allt.“ „Já, er það ekki skrítið.“ IJún vikli fylgjast með. „Hafið þér lesið Hafliðarimur?“ spurði Gamalíel og tók út úr sér efri góminn og stakk honum upp í fiskinn. Konan hörfaði eitt skref. Gamalíel ítrekaði spurninguna. Hann bar virðingu fyrir forn- um sið. En Hallgerði þótti fiskurinn brosa til sín með þessum voða- lega góm, hún gat því ekkert sagt. Gamalíel setti upp freðýsusvip og konan hélt áfram að vera túristi. Hún var túristi þarna i ldakstöðinni. Hún var túristi alls staðar, líka heima bjá sér. Drottinn minn góður, hvað liún var mikill túristi. „Ég er svo mikill túristi,“ sagði bún og leit undan og ofan i þróna, þar sem litlir fiskar syntu, sem voru næstum ekkert nema brogn, en mundi svo eftir einliverju til að segja við manninn og ætlaði að segja: ég borða aldrei fisk, en þorði það ekki, þegar bún sá, hvernig liann var í framan og tiplaði burt. Svo kom bún að hliðinni á Larry og spurði: „Larry, hvað viltu vera að gera hingað?“ Hann tók myndir af fiskunum. Larry: „Brosið.“ Múlki vann þarna einnig, sá, er síðar nam hárkollugerð og varð færastur landsmanna á því sviði. Hann slóð á bakkanum hinum megin. % Larry: „Meðal annarra orða, yfirlitsmynd yfir úthafið höfum við ekki, en vegabréf á astralplanið getum við látið hvern hafa, sem vill. Við höfum til að mynda ljósmyndað tunglið í bak og fyrir. Við framleiðum endogso stjörnusiglingamenn og höfum 68

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.