Eimreiðin - 01.01.1975, Qupperneq 68
ElMREIÐlN
alveg í rökkriö, en stúlkan vissi, að liann var i gulri skyrtu með
brún axlabönd og ljósbrúnum vinnubuxum. Með þvi að ein-
beita sér að mynd Gamalíels i huga sér bélt liún aftur af bugs-
unum sínum.
„Búinn,“ kallaði Larry.
Stúlkan tiplaði fram með þróarbarminum.
Hún staðnæmdist fyrir framan Gamalíel og liorfði á bann.
Hann spurði: „Hafið þér séð ömbru?“ skælbrosti og kreisti
svilin aftur af fiskinum ofan í fötu við fætur sér. „Ambra er
svil hvalsins,“ sagði hann svo og bætti við: „Það eru sko svil.“
„Já, því trúi ég,“ svaraði Hallgerður.
„Vellekla var ort af hrosskærum.“
„Hvað eigið þér við?“ Hún var lítið lesin.
„Tunnan valt og úr henni allt.“
„Já, er það ekki skrítið.“ IJún vikli fylgjast með.
„Hafið þér lesið Hafliðarimur?“ spurði Gamalíel og tók út
úr sér efri góminn og stakk honum upp í fiskinn.
Konan hörfaði eitt skref.
Gamalíel ítrekaði spurninguna. Hann bar virðingu fyrir forn-
um sið.
En Hallgerði þótti fiskurinn brosa til sín með þessum voða-
lega góm, hún gat því ekkert sagt.
Gamalíel setti upp freðýsusvip og konan hélt áfram að vera
túristi. Hún var túristi þarna i ldakstöðinni. Hún var túristi
alls staðar, líka heima bjá sér. Drottinn minn góður, hvað liún
var mikill túristi. „Ég er svo mikill túristi,“ sagði bún og leit
undan og ofan i þróna, þar sem litlir fiskar syntu, sem voru
næstum ekkert nema brogn, en mundi svo eftir einliverju til
að segja við manninn og ætlaði að segja: ég borða aldrei fisk,
en þorði það ekki, þegar bún sá, hvernig liann var í framan og
tiplaði burt.
Svo kom bún að hliðinni á Larry og spurði: „Larry, hvað
viltu vera að gera hingað?“
Hann tók myndir af fiskunum.
Larry: „Brosið.“
Múlki vann þarna einnig, sá, er síðar nam hárkollugerð og
varð færastur landsmanna á því sviði. Hann slóð á bakkanum
hinum megin.
%
Larry: „Meðal annarra orða, yfirlitsmynd yfir úthafið höfum
við ekki, en vegabréf á astralplanið getum við látið hvern hafa,
sem vill. Við höfum til að mynda ljósmyndað tunglið í bak og
fyrir. Við framleiðum endogso stjörnusiglingamenn og höfum
68