Iðunn - 01.12.1884, Síða 11

Iðunn - 01.12.1884, Síða 11
Slcólalif á miðöldunum. 281 laust. I2n í ölæðinn og ofsanum ljetu þeir eigi þar með staðar numið, heldur fóru og lömdu á öðrum bœjarmönnum, hverjum sem þeir gátu hönd á fest. Bæjarmenn tóku sig saman, völdu þá úr sínum hóp, er verst voru útleiknir, og sendu þá á fund Blönku drottningar, er þá gengdi ríkisstjórn, í æsku sonar síns, Hlöðvis hins helga, að kæra mál sitt. Sendimenu lýstu vandlega hrakningum sínum fyrir drottningu og snýttu rauðu til sanuindamerkis. Drottning reiddist, og bauð lífverði sínum að fara þegar til liðs við borgarmenn, og refsa vægðarlaust óeirðarseggjunum, er þeir næðust. Liðsménn lögðu af stað og ljetu all-vígamannlega. J>eir spurðust fyr- ir, hvar fjandmenn sína væri að hitta. En er þeir urðu þess varir, að þeir skiptu þúsundum og höfð- ust við þar sem þrengst voru stræti í borginni, þá runnu á þá tvær grímur og hjeldu í gagnstæða átt. Svo átti illa til að takast, að þá bar þar að, er nokkr- ir friðsamir stúdentar, er eigi voru hót við rósturn- ar riðnir, voru að leikum, á' velli einum fyrir ut- an borgina. En er hermenn litu þar stúdentabún- inginn, svall þeim móðurinn og rjeðu á hina ungu menn, er áttu sjer einskis ills von, drápu nokkra, særðu marga og rændu alla, er þeir fengu hönd á fest, og fórst það allfimlega. Nú varð allt annað efst á baugi. Að borgarmönnum hafði verið misboð- ið og misþyrmt hremmilega, þess gætti nú éigi minnstu vitund; nú fengust allir um það eitt, hverj- um vanþyrmslum einkarjettindi stúdenta hefðu orð- ið að sæta og kröfðust rjettlætis fyrir þeirra hönd með mikilli ákefð. Hver annar en drottningin, sem hefði átt í hlut, mundi hafa fengið að kenna á þessu tiltæki óþyrmilega. það bakaði henni jafnvel mikla

x

Iðunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.