Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 13

Iðunn - 01.12.1884, Blaðsíða 13
SkólaHf d miðöldunum. 283 xYfirbætur ! yfirbætur ! bölvaður Satan ! J>ú, sem svívirðir liina heilögu móður, kirkjuna 1 |>ú, sem níðist á rjettindum hennar ! Yfirbætur, eða til hel- vítis með þig að öðrum kosti!« jpessari hóglcgu málaleitan fylgdi snörp grjóthrið á hurðir og'glugga, Og er »bölvaður Satan« gat ekki komið því fyrir sig, hvernig hann ætti að fara að gera yfirbætur þar á sömu svipstundu, var hann þegar í stað bannfærður með hinum harðasta formála. En ekki var öllu þar með lokið. þegar hinni dökku sveit þvarr rómur og grjót þraut slíkt hið sama, var haldið áfram prósessí- unni og gengið til hallar konungs, Filipps hins fríða, og hann krafinn rjettlætis með mikilli háreysti. Fyrst vildu þeir eigi láta sjer annað lynda eða minna en að borgarstjóri væri að vörmu spori upp festur á sjálfs hans gálga, þann hæsta er til væri. Konung- ur varð að þinga við þá langa hríð og fara bónarveg til þess að fá borgið lífi síns dyggva þjóns, og það með þeim skilmála, að »glæpamaðurinn væri þegar í stað rekinn frá embætti, látinn biðja háskólann fyrirgefningar á hnjánum, taka stúdentinn ofan af gálganum og kyssa hann á munninn, stofna tvö prestsembætti fyrir sálu hans, og fara pílagrímsför til Avignon og taka þar lausn af páfa«. Sömu forlög hlaut einn eptirmaður þessa borgarstjóra hundrað árum síðar, 1408, fyrir það, að hann var svo einfald- ur að fmynda sjer að »kunnugleiki hans á borgara- legum lögum veitti sjer heimild að hafa að engu lög heilagrar kirkjua, svo að hann ljet hengja tvo stúd- enta, er höfðu ráðizt á nokkra kaupmenn á ferðalagi, rænt þá og myrt síðan. Með þessum hætti var valds- mönnum kennt að gera mun á lærðum og leikum í þá daga.

x

Iðunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.