Iðunn - 01.12.1884, Page 36

Iðunn - 01.12.1884, Page 36
306 Skólalíf á miðöldunum og af illgirni og hrekkjum, með því móti að góra krossmark fyrir sjer í laumi innan vébanda. Svik- ararnir voru síðan höndlaðir og hrundið á bál; en óðar en þeir voru brunnir til ösku og bálið sloknað, gerði þann feikna-byl er enginn mundi slíkan, og kenndu það allir hinum líflátnu fjölkyngismönnum. það leynir sjer ekki, þar sem lýst er siðferði manna og ýmsum háttum á miðöldunum, að klerkar og kennimenn voru opt og tfðum miklu fremur fröm- uðir lasta en fyrirmynd dyggðar og guðsótta. það átti fyllilega heima um þá, að »hjartað er sviksam- legt framar öllu öðru og ákatíega lastafullt#. Enda var það og engin furða, eptir undirbúningnum á námsárunum. Sjer í lagi var það títt um heimilis- presta hjá stórmenninu, að þeir komu miklu fremur fram eins og ótíndir þorparar og loddarar heldur en flytjendur náðarboðskaparins, og áunnu sjer hylli húsbænda sinna með því að skemmta þeim með ýmsu móti, misjafnlega fögru, miklu fremur heldur en með góðum ræðum. Dæmi þess er Delebaigne ábóti. Hann varð nafnkunnur fyrir nýtt hljóðfæri, er hann hugsaði upp til að skemmta Hlöðvi ellefta Erakkakonungi. Hann ljet gera körfu með mörgum hólfum og mjóum, ljet lifandi grís í hvert hólf, en á milli hólfanna var járnsívalningur, alsett- ur broddum, er snúa mátti með sveif. Hann ljet breiða dúk yfir vjel þessa og bera síðan inn fyrir konung, setti upp næsta hátíðlegan svip og tók til að snúa sveifinni, svo að öll svínin hrinu í einu eins og þau ætluðu að rifna. |>ótti konungi það hin beztu skemmtun og sæmdi klerk stórgjöfum fyrir. (B. J. íslenzkaði).

x

Iðunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn
https://timarit.is/publication/441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.