Ægir - 01.12.1916, Side 26
154
ÆGIR
Pollsins eru 3 rauðar baujur með upp-
bendandi kústum á 4,7, 4 og 3 m. vatns-
dýpi.
6. Á Laufásgrunni og Toppeyrargrunni
i Eyjafirði eru baujur, sem þó vanalega
eru teknar burtu yfir veturinn og þegar
isar eru.
Mótornámskeið á ísafirði.
Það byrjaði 2. október, þátttakan var
fremur lítil til að byrja með, en óx þeg-
ar áleið.
Kenslan var bæði bókleg og verkleg.
Alls var kent í 98 tima.
Verklega kenslan var aðallega fólgin i
þvi, að læra að setja mótor af stað, og
finna galla á honum sem gerðir voru af
kennaranum. Við höfðum þrjár vjela-
tegundir til þessa. Einnig var farið með
nemendurna í ýms skip, og vjelarnar
skoðaðar í þeim. Einn dag var farið á
mótorbát í hvassviðri, til að æfa nem-
endurna í þvi, að breyta gang mótorsins
°g leggJa skipshlið.
Hjeraðslæknirinn á ísafirði hjelt 10
fyrirlestra læknisfræðislegs efnis, og voru
þeir sóttir af nemendum beggja náms-
skeiðanna, — þar var einnig haldið nám-
skeið fyrir skipstjóra á smáskipum. —
Þess konar fyrirlestrar eru afar nauð-
synlegir, sjerstaklega fyrir sjómenn, sem
allir ættu að vita til hvaða ráða skal
taka, þegar slys ber að höndum, til þess
að geta veitt bráðabyrgðarhjálp, þar til
næst í læknir.
Að loknu námsskeiðinu var haldið
próf í mótorvjelfræði, prófdómendur voru
skipaðir af bæjarfógetanum á ísafirði, þeir:
Þórður Þórðarson og Sigtryggur Guð-
munsson, báðir vjelasmiðir á ísafirði. Af
11 sem sóttu námsskeiðið voru 9 sem
tóku próf, 2 gátu eigi gengið undir prófið,
sökum þess að þeir höfðu eigi náð þvi
aldurstakmarki sem reglugerðin setur.
Þessir tóku próf:
Frímann Tjörvasou, ísafirði. . . . 18stig
Sigurður Pjetursson, Skagafirði. . 12 —
Iíristinn Guðm. Guðbjartss., ísaQ.s, 16 —
Jón Guðmundur Jónsson, ísafirði 18 —
Kristján M. Kristjánss. Dýrfjörð, ísf. 18 —
Guðmundur Jón Danielss., Súga.f. 19 —
Óskar Bjarnason, Stapadal.........11 —
Jón Albertsson, ísafirði. ........17 —
Þórarinn Helgason, ísafirði .... 14 —
Kenslan fór fram i bæjarþinghúsi ísa-
fjarðar, lánaði bæjarstjórnin það ókeypis
með ljósi og hita, og færi jeg henni og
öðrum er hlyntu að námsskeiðinu min-
ar bestu þakkir. ól. Sveinsson.
Skýrsla
til Fiskifjelags íslands í Reykjavík nm
sjómannakenslu á ísailrði vetnrinn 1916.
Námsskeiðið byrjaði 9. október og end-
aði 21. nóvember. Nemdendur voru 8.
Þar af tóku 4 próf. Einn vantaði mánuð
til að geta fengið sjóferðavottorð sin og
tekur hann próf um nýárið. Hinir 3 hættu
við námið eftir hálfsmánaðar tima; voru
2 þeirra svo illa undirbúnir, að þeir
hefðu þurft svo langan tima til að taka
próf, og var álitið ótækt að halda kenn-
ara eftir þvi. 1 var kallaður i skiprúm
og varð að hætta þess vegna.
Þessir tóku prófið:
Friðrik Guðmundsson, Súgandaf. 24 stig
Rristján Guðmundsson, Súgandaf. 26 —
Guðmundur Salómonsson, ísafirði 32 —
Snæbjörn Einarsson, Hellissandi . 31 —
Prófdómendur voru: Benedikt Jónsson,
Brynjólfsson og Jón Pálsson, skipstjórar.