Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1922, Page 9

Ægir - 01.04.1922, Page 9
ÆGIR 43 Erindisbréf fyrir erindreka Fiskifélags íslands. 1. gr. Erindrekaumdæmin eru fjögur og takmarkast þannig: Umdæmi erindrekans i Sunnlendingafjórðungi nær frá Ingólfshöfða að sunnan að Gljúfurá á Skógarströnd að vestan ásamt Vestmannaeyjum, umdæmi erindrekans i Vestfirðingafjórðungi frá Gljúfurá á Skógarströnd að Hrútatjarðará, umdæmi erindrekans í Norðlendinga- fjórðungi frá Hrútafjarðará að Langaneslá og umdæmi erindrekans i Austfirðinga- fjórðungi frá Langanestá að Ingólfshöfða. 2. gr. Erindrekinn starfar undir yfirumsjón og eftirliti stjórnar Fiskifélags Islands og í samráði við hana, og ber honum að hlýða skipunum hennar og fyrirmælum i hvivetna. Hann skal hafa aðsetur sitt einhverstaðar i umdæmi sínu og ferðast um það að minsta kosti einu sinni á ári og á þeim tima, er ferð hans getur komið að beztum notum, til þess að leiðbeina mönnum í öllu því, sem verða má sjávarútveginum til eflingar, og heimsæki hann þá allar deildir umdæmisins. 3. gr. Starf erindrekans á einkum að vera innifalið i þvi, sem hér greinir: 1. Að starfa að útbreiðslu Fiskifélagsins með því að stofna deildir i umdæmi þvi, sem hann er settur yfir. 2. Að hvetja menn til tilrauna með nýjar veiðiaðferðir og gefa leiðbeiningar þar að lútandi og einnig um notkun veiðarfæra. 3. Að fræða menn um beztu gerð veiðarfæra, seglaútbúnings og annars, sem til útgerðar heyrir, og gefa leiðbeiningar um alt slíkt eftir föngum. 4. Að gefa bendingar um endurbætur á uppsátrum, leiðarmerkjum o. fl. 5. Að hvetja menn til að stofna lendingarsjóði og tryggingarsjóði fyrir formenn og háseta. 6. Að leiðbeina mönnum með hagnýting aflans og meðferð á honum. 7. Að brýna fyrir mönnum góða meðferð á veiðarfærum, skipum og bátum og öðru því, sem til útgerðar heyrir. 8. Að útvega vel hæfa menn til þess að safna aflaskýrslum frá skipstjórum og formönnum skipa og báta ekki sjaldnar en einu sinni í viku og senda þær erindrekanum, sem svo sendir skýrslur þessar til Fiskifélags íslands ekki sjaldnar en á hálfsmánaðarfresti. Enn fremur skal erindrekinn senda Fiskifélaginu símleiðis stutt heildar- yfirlit yfir afla i umdæmi sínu ekki sjaldnar en á hálfsmánaðarfresti. 9. Að flytja fræðandi og vekjandi erindi bæði í deildum Fiskifélagsins og annar- staðar innan umdæmisins, þar sem þvi verður við komið, um sjávarútveg og

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.