Ægir - 01.04.1922, Side 18
52
ÆGIR
að fá einkaréttindi yfir öllum heimskauta-
löndunum. »The Corporation of Hull«
sendi bænaskrá til Englakonungs og veitti
konungur þvi umráðarétt yfir Jan Mayen
árið 1817. Samt sem áður héldu bæði
Englendingar og Hollendingar áfram að
stunda veiðar þar og gekk svo alt fram
að 1840. Hafa þeir sennilega skift eynni
á milli sín, þannig að Englendingar hafa
fengið eystri blutann en Hollendingar
þann vestri. Á þetta benda ýmsar leifar,
sem íundist hafa norður þar.
Meðal enskra hvalveiðamanna má í
þessu sambandi nefna Scoresby, sem
i ágætu riti sínu »Skýrsla um Norður-
heimaskautalöndin«, hefir látið eftir sig
mikilsverðar heimildir, auk lýsingarinnar
á hvalveiðunum. Lýsing bókar þessarar
.Tan Mayen er með afbrigðum ljós og
nákvæm. Vegna hinna ágætu veiða höfðu
Hollendingar afráðið að koma upp fastri
verstöð á Jan Mayen. Til þess að rann-
saka skilyrðin fyrir þessu skyldu þeir
eftir 7 menn eitt haustið og áttu þeir
að dvelja þar um veturinn. Þegar veiði-
menn komu aftur um vorið, fundu þeir
alla vetursetumennina dauða í hreysi
sínu. — Þeir höfðu — eftir dagbókinni
að dæma — látist af skyrbjúg í lok apríl
og byrjun maí um vorið. Dagbókin,
sem þeir höfðu haldið um veturinn, er
mjög merkt rit. Þar er sagt frá veðri,
hita og ís hvern einasta dag, svo langt
sem hún nær. Þessar upplýsingar, i sam-
bandi við athuganir Austurrikismanna á
Jan Mayen 1882—83 og rannsóknir þær,
er norska athugunarstöðin nýja fram-
kvæmir, munu sennilega leiða af sér
mjög merkilegar kenningar um is og
hafstrauma. (Morgunbiaðið).
Lífgunaraðferðir.
Sundbók í. S. í. II. hefti, með 25
myndnm til skýringar lesmálinu, er ný-
komin á markaðinn. Er það ómissandi
bók fyrir alla þá, sem nema vilja sund
til hlítar. Þetta er áttunda iþróttabókin,
sem íþróttasamband íslands (í. S. í.)
hefir gefið út, auk ýmsra laga og reglu-
gerða, og verður því ekki með sanni
sagt, að bókaútgáfa »Sambandsins« gangi
grátlega seint; þegar tekið er tillit til
hins litla styrks, sem í. S. í. hefir haft
frá byrjun. — Aðalútsala á bókum í. S.
1. er hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar hér. — Kaupið bækur í. S. í., og
styrkið með því hið þjóðnýta starf, sem
»Sambandið« hefir með höndum.
Úr þeirri bók eru með leyfi hlutað-
eigenda eftirfylgjandi lífgunaraðferðir
teknar og ættu fiskimenn að lesa þær
með athygli og nota í viðlögum:
Fram til ársins 1907 þekti brezka
sundsambandið og kendi þrjár lífgunar-
aðferðir. Voru þær kendar við »Silvest-
er«, »Howard« og »Marshall Hall«. Það
var sameiginlegt þessum aðferðum öll-
um, að sjúklingurinn var fyrst lagður á
bakið, og þurfti þá vandlega að gæta
þess, að tungan ekki lokaði fyrir barka-
opið. Þótt aðferðir þessar hafi oft gefist
vel, þá hafa þær þó ýmsa galla, er
einkum koma i ljós, er lífga skal þá
menn, er kafnað hafa í vatni. Vegna
þess að sjúklingurinn liggur á bakið er
að miklu leyti loku fyrir það skotið, að
vatn, slím og froða geti runnið upp úr
honum, enda stöðugt hætta á því, að
tungan leggist yfir barkaopið, því allir
vöðvar eru þá slappir og máttlausir.
Ennfremur er oft vatn og slím i sjálfum
barkanum, er breytist i froðu við and-
súginn, og getur lokað barkagreinunum.