Ægir - 01.04.1922, Qupperneq 25
ÆGIR
59
hin mesta velsæld og blómleg menning og
báru þeir bræður af ungum mönnum að
atorku og ráðdeild. En er Jón fluttist að
Flateyri og tók að verzla, nú fyrir nálega
6 árum, seldu þeir 2 bátana, en Kristján
varð kyr og bélt »Valþjófi« sínurn úti af
binu mesta kappi, enda var hann í allra
freinslu röð aflamanna og gat valið úr
hásetum, bæði vegna þess bve fengsæll
hann var, og svo var hann slíkur öðling-
ur að eðlisfari og hátterni að fáa getur
slíka. Ráðvendni hans og siðferði urðu
allir að dáðst að sem nokkuð kyntust
honum, enda var hann sérlega ástsæll
maður. Aflabrögð og sjómensku bar hann
uppi í Valþjófsdal hin síðari ár, og var í
því efni stoð og stytta bygðarlagsins. Auk
allra þeirra aðdrátla og atvinnu er ávalt
var umhverfis hann, er ekki með tölum
talið nú, hve mörgum hinum efnaminni
mönnum hann rétti hjálparhönd, auk þess
sem hann með sínum frábæra dugnaði
og aflasæld studdi fast að efnalegu sjálf-
stæði margs mannsins er hjá honum var.
Gamall og greindur sjómaður, sem verið
hefir háseti hjá ýmsum formönnum á Vest-
fjörðum meir en 30 ár, en var með Krist-
jáni sál. 14 vertíðir, segir mér, að hann
hafi aldrei kynst duglegri, ósérhlifnari né
vandaðri manni, og svo munu flestir
kveða að, sem þektu Kristján sál. bezt.
Fyrir rúmum 2 árum (7. Júní 1919) gift-
ist Kristján sál. eftirfarandi ekkju sinni
Maríu Einarsdóttur, systurdóttur Friðriks
ú Mýrum, hinni mestu myndarkonu; varð
þeim tveggja barna auðið og lifa þau bæði.
Flutti hann þá frá Kirkjubóli og reisti bú
niður við sjóinn, kom þar upp myndar-
legu húsi og var strax byrjaður á nýrækt
i kringum sig. Var auðséð að hann ætl-
aði að gera þann »garð gildann« og hið
nýja heimili myndarlegt, enda var hann
afbragðs húsfaðir og eiginmaður, er alt
vildi í sölur leggja fyrir skyldulið sitt.
Leikur enginn efi á þvi, að ef hans hefði
notið lengur við, þá hefði þetta nýbýli
hans þarna í Valþjófsdal eftir nokkur ár
sýnt það bezt hvílíkur atorku og ráðdeild-
armaður hann var. En — »nótt fylgir degi,
fallið flugi og fölnun blómstrandi grund«.
Svo kom hin þunga harmafregn, að hann er
horfinn fyrir fult og alt, — horfinn börnun-
um og henni sem bygði allar framtiðar von-
ir á honum, — horfinn ástríkum systkinum
og ellimóðum foreldrum, horfinn sveitinni
sinni, sem við fráfall hans misti einn sinn
atorkumesta og bezta mann, horfinn okk-
ur öllum sem nú horfum hljóðir á skarð-
ið, — horfinn út í haustsortann sem svo
oft vill loka útsýninu. En Kristján Eyj-
ólfsson hefir áreiðanlegu siglt sinu fleyi
til sólarlandsins, því þar átti hann heima.
Með Kristjáni sál. fórst einnig Guðjón
Jörundsson húsmaður á Flateyri frá konu
og 3 ungum börnum, mikill dugnaðar-
maður, og tveir unglingspiltar: Pélur Ein-
arsson mágur Kristjáns sál. og Gísli Jör-
undsson, ellistoð gamalla foreldra, báðir
efnilegir menn og beztu drengir.
Flateyri 14. apr. 1922.
Snorri Sigfússon.
Glsli i 0gurnesi.
Hinn 27. rnarz þ. á, andaðist á ísafirði
Gísli Jónsson, sem lengi bjó i Ögurnesi
við Isafjarðardjúp, 83 ára að aldri. Hann
var um langan aldur í röð hinna lang-
fremstu sjómanna og farmanna við djúp;
mátti telja hann sægarp á yngri árum
hans. Hann var formaður i ýmsum veiði-
stöðum við Djúpið í 45 ár samfleytt, og
lét ekki af formensku fyr en um sjötugt.
Var hann lengt með hinum hluthæstu
formönnum. Lagni hans og karlmensku
var við brugðið, bjargaði hann víst þris-