Ægir

Volume

Ægir - 01.04.1922, Page 31

Ægir - 01.04.1922, Page 31
ÆGIR 65 og spönsku salti. Þjóðverjar höfðu þá enn eftir, nokkurn skipakost, og þar sem þeir áttu þá eigi kost viðskifta við aðrar þjóðir alment, gerðu þeir sér að góðu að sigla hingað fyrir lág farmgjöld. Alt þýzka saltið er jarðsalt. Það er þess vegna eðlilegt að það sé misjafnt að gæðum. Saltlögin i jörðinni mismun- andi hrein. Þetta reyndist og svo um þýzka saltið, sem fluttist hingað á árun- um 1919, 1920—1921. Nokkuð af þessu salti var falleg vara, og reyndist líka áreið- anlega svo í notkun, en yfirborðið var óhrein og illa vönduð vara, sem aldrei hefði átt að taka á móti hér, og því siður nota. Hver áhrif þessar salttegundir hafa á flskinn, er eigi svo gott að lýsa. Á ný- verkuðum fiski sjást kanske engir gallar, og úr þýzka saltinu var fiskurinn yfir- leitt fallegur, bæði upp úr saltinu og eins nýverkaður. En gallarnir koma ekki fram fyr en við geymslu. Það sem nú mun hafa valdið aðvör- un stjórnarinnar er einmitt slikur fiskur, saltaður með Middlesborough-salti og geymdur hér vetrarlangt. Fiskur þessi var metinn síðastliðið haust, og var þá að sjá bezta vara, en reyndist við end- urmat lítt útflutningshæfur. Það er því augljóst, að of rnikið er undir átt, að vanda eigi svo til saltsins, sem frekast er kostur. Erfiðleikarnir og kostnaðarmismunurinn við að ná hin- um réltu salt-tegundum, eru nú orðið eigi svo tilfinnanlegir, að orð sé á ger- andi, en afleiðingarnar, sem misjafnt salt getur af sér leitt eru svo alvarlegar, að fullkomið afsökunarleysi væri það, að láta eigi aðvörun stjórnarinnar sér að kenningu verða. Það salt, sem bezt á við okkar sölt- unaraðferð á fiskinum, eru hinar ýmsu Miðjarðarhafstegundir, sem nú munu hafa rutt sér til rúms aftur hér á ís- landi. I. Fyrirmynd fyrir vottorði yflrfiskimatsmanna um Spánar-stórfisk. Matsvottorð. Sorter’s Certificate. Undirritaður yfirfiskimatsmaður skipaður af Stjórnarráði Islands vottar I the undersigned chief fish sorter appointed by the Icelandic Government hereby hérmeð að neðantalinn úeclare that the undermentioned er spánarmetinn góður, óskemdur, vel verkaður og full þurkaður ______________ flokks ,s Spansh assorted good, sound, well cured and fully dried -......... Class stórfiskur veiddur —........... verkaður-------------og hefir honum verið skipað út Large Cod caught -------------- cured --------------- and that the Ioading has taken place f þurru veðri. in dry weather. þann 19 the 19

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.