Ægir - 01.03.1931, Qupperneq 8
54
ÆGItt
gerð fyrir þessu áskorunum. Enn
fremur mun, eftir því sem tími vinnst
til.þingmönnum kjördæmanna iNorð-
lendingafjórðungi, verða á einn eða
annan bátt, falið að leggja þessum
áskorunum vorum liðsinni, að því
leyti, er til þeirra starfssviðs nær«.
Tillagan var samþykkt með öllum
greiddum atkvæðum.
8. Fiskimat. Útgerðarmaður Jón Sig-
urðsson, hóf umræður um málið og tal-
aði á víð og dreif um samræmingu mats-
ins, pökkun, merkingu o. fl.
Á fundinum var mættur settur yfir-
fiskimatsmaður Jóhannes Jónasson og
tók hann þátt i umræðunum og svaraði
fyrirspurnum fundarmanna.
1 málinu var samþ. svo hlj. tillaga:
»Fundurinn skorar á stjórn Fiskifélags
lslands að hlutast til um það, við réttan
aðila, að kaup fiskimatsmanna verði
lækkað og samræmt við kaup annara
verkamanna«.
Samkvæmt tilmælum frá formanni
Bátaeigendafélags Siglufjarðar, beindi út-
gerðarmaður Ingvar Guðjónsson þeim
tilmælum til fundarins, hvort hann vildi
ekki hlutast til um það, að Siglufjörður
fengi sérstakan yfirfiskimatsmann, eða
að útgerðarmenn þar losnuðu við það,
að minnsta kosti, að greiða aukagjald
fyrir umsjón með matinu.
Út af tilmælum þessum urðu nokkrar
umræður og var samþykkt í málinu svo
hljóðandi tillaga:
»Fundurinn skorar á settan yfirfiski-
matsmann, Jóhannes Jónasson, að hlut-
ast til um það, að niður falli gjald það,
5 aurar á hver 50 kg., sem fiskútflytj-
endur á Siglufirði hafa orðið að greiða
að undanförnu, þarverandi umboðsmanni
yfirfiskimatsmannsins«.
Yfirfiskmatsmaðurinn upplýsti.að hon-
um væri ókunnugt um gjald þetta og
að hann teldi enga sanngirni mæla
með því.
9. Fisksölusamlag. Nefnd sú, sem kosin
hafði verið í málinu, til þess að undir-
búa það og semja tillögur í því, lagði
fram itarlegt nefndarálit í 7 liðum og
greinargerð með því.
Eftir miklar umræður nm málið, voru
eftirfarandi tillögur samþykktar með öll-
um greiddum atkv.:
a. »Fundurínn lýsir sig eindregið hlynnt-
an þvi, að fisksölusamlög komist
sem víðast á, en þar sem mál þetta
er enn litið undirbúið, telur hann rétt,
að hinum einstöku deildum gefist
kostur á að ræða og athuga fram-
komnar tillögur í því.
b. Fundurinn felur nefnd þeirri, er hef-
ur haft þetta mál til meðferðar, að
hafa framvegis á hendi, til bráða-
birgða, framkvæmdir þess, svo sem
þörf krefur«.
10. Ferðakostnaður fulltrúanna athug-
aður af þar til kjörinni nefnd, og ferða-
styrk úthlutað.
Fleiri mál ekki tekin fyrir.
Guðm. Pélursson, Gunnar Pórðarson,
fundarstjóri. Jón Benediktsson.
Fund þennan sátu yfir 50 útgerðar-
menn og sjómenn, og var hann setinn
að staðaldri af milli 30 til 40 mönnum.
Var áhugi mikill fyrir málefnum fund-
arins og umræður almennar og fjörugar.
Létu menn það í ljós, að nauðsynlegt
væri að halda slika fundi sem oftast.