Ægir - 01.01.1932, Side 12
Ö
ÆGIR
bátar. Þar af 28 stærri en 12 smál., árið
áður gengu þaðan 24 bátar. Afli var þar
tlltölulega miklu meiri en í nokkurri
annari veiðistöð, eða 22817 skpd. (9568).
Auk þess fiskuðu bátar þaðan töluvert
í dragnót, seinni hluta sumarsins og
haustið, bæði heima og frá öðrum lands-
hlutum, en sá fiskur var allur seldur
ferskur, ýmist til útflutnings eða til neyzlu
í Reykjavík.
Af Vatnsleysuströnd og Vogum, gengu
2 stórir bátar bátar ca. 20 smál. og 6
trillubátar, árið áður gengu þaðan 11
trilluhátar, Stóru bátarnir eru eign Út-
gerðarfélags Vatnsleysustrandar, sem tók
til starfa á árinu, eru í félaginu flestallir
íbúar Vatnsleysustrandar og Voga og lét
fálagið byggja bryggju og fiskhús í Vog-
um fyrir þessa útgerð sína. Heildarafli
til söltunar 1498 skpd, (464).
Hafnarfjörður, þaðan gengu 8 togarar,
7 línuveiðagufuskip og 1 vélbátur yfir
12 smál. Árið áður gengu þaðan 7 tog-
arar, 10 línuveiðagufuskip og 4 vélbátar.
Afli 42110 skpd. (52061). Hafnarfjarðar-
bær keypti i ársbyrjun togarann »Maí«,
og hélt lionum úti til veiða,
Reykjavík, þaðan gengu 28 togarar, 9
linuveiðagufuskip, 7 vélbátar yfir 12smá-
lestir og 17 opnir vélbátar. Árið áður
gengu þaðan 32 togarar, 14 línugufubát-
ar, 7 vélbátar yfir 12 smálestir og 7
minni vélbátar. Afli 126531 skpd. (157486).
Útgerðartiminn var styttri en venjulega,
einkum að því er togarana snertir, eins
og áður hefur verið tekið fram.
Akranes, þaðan gengu á vertiðinni 2
línuveiðagufuskip og 17 vélbátar stærri
en 12 smál. Árið áður gengu þaðan 2
línuveiðagufuskip, 15 vélbátar stærri en
12 smálestir og 3 minni vélbátar. Afli
13836 skpd. (9495). Auk þess stuudaði 1
linugufubátur þaðan ísfiskveiðar yfir
sumarið og haustið, og mikið af fiski
var flutt þaðan út í is, eða selt til Rvik-
ur um haustið.
Hjallasandur, þaðan gengu 8 dekkaðir
vélbátar, minni en 12 smál. og 12 trillu-
bátar, og er það sama bátatala og árið
áður. Afli 2779 skpd. (2174).
ólafsvik, þaðan gengu 11 opnir vél-
bátar, árið áður gengu þaðan 8 bátar.
Afli 1416 skpd., (1009). Nokkrir bátanna
stunduðu dragnótaveiðar um haustið, og
seldu afla sinn í togara til útflutnings.
Stykkishólmur, þaðan gekk 1 línuveiða-
gufuskip, Alden, eign Samvinnuútgerðar-
innar í Stykkishólmi, 3 vélbátar )rfir 12
smál. og 18 minni bátar og róðrarbátar.
Árið áður gengu þaðan 3 vélbátar yíir
12 smál. og 18 minni bátar, Afli 2694
skpd. (2525).
Loðna kom aldrei á árinu í Faxa-
flóa, eða upp að Suðurlandinu og á árið
að því leyti sammerkt við árið á undan,
sömuleiðis var mjög litið vart við sili.
Vestfirðingafjórðungur.
Árið var þar eitthvað mesta aflaár, sem
komið hefur og byrjaði strax upp úr
áramótum. Undanfarandi 2 ár hafa verið
þar ágætis aflaár, en þetta ár fór langt
fram úr, einkanlega var aflinn mikill fyrri
hluta ársins við ísafjarðardjúp, og á hafi
úti, en fiskur gekk aldrei vel í firðina
eða á grunnið.
Steinbítsafli var litill fyrir Vestfjörðum,
enda var lítið lagt sig eftir þeirri veiði,
þar sem gnægð var af öðrum fiski, en
steinbítsveiðin hefur oft verið mikil hlut-
aruppbót fyrir sjómenn vestra, einkum
eftir að markaður opnaðist í Reykjavík,
fyrir hertan steinbít (steinbítsrikling), og
enginn efi á því, að með vaxandi út-
flutningi á ferskum fiski, og margbætt-
ari verkun, á steinbiturinn eftir að kom-
ast j sinn gamla virðingarsess og álit,
sérstaklega má gera sér vonir um að