Ægir - 01.01.1932, Page 20
14
ÆGIR
hélzt ekki lengi, enda var framboðið
margfallt á við eftirspurnina og þegar
komið var fram í júlíbyrjun, var verðið
komið niður í 88—90 kr., og útflutning-
ur þó tiltölulega tregur af nýja fiskinnm.
Eftir það fór að draga enn meira úr
sölunni, og útflytjendur tregir til að kaupa
fyrir fast verð, en framleiðendur yfirleitt
ekki búnir að átta sig á ástandinu og
voru því ekki fúsir til að láta fisk sinn
í umboðssölu.
Fiskbirgðirnar héldu því áfram að safn-
ast fyrir í landinu og fiskverkun að mestu
lokið, því fiskþurkunin hafði gengið
mjög vel og veðrátta til fiskþurkunar
sérstaklega hagstæð allt sumarið. Þegar
komið var fram í byrjun septembermán-
aðar fóru menn því almennt að láta
fisk sinn af hendi í umboðssölu, einkum
það sem til Spánar fór, og var greitt út
á þann fisk af útflytjanda 65 kr. fyrir
skpd af stórfiski, en þetta verð fór líka
lækkandi, og var i desemberbyrjun jafn-
vel komið niður í 45—50 kr. Það er að
vísu búist við að einhver uppbót fáist á
þessum viðskiftum, en enn þá er ekki
hægt að sjá, hve mikil hún verður al-
mennt.
Verð á óverkuðum saltfiski var i árs-
byrjun 26 aura pr. kg., en lækkaði fljót-
lega niður í 24 aura og hélzt í því fram
eftir vertiðinni.
Tollur á fiski á Spáni er talinn óbreytt-
ur, en þar sem tollurinn er miðaðurvið
gullgengi (25,60 gullpesetar pr, 100 kg),
hefur sú raunin orðið á, við fall peset-
ans og ísl. krónunnar, að hann hefur
hækkað allverulega ,og er því með núver-
andi gengi framundir 50 kr. á skpd.
Þar sem um almenna ogódýra neyzlu-
vöru er að ræða, eins og saltfiskinn, er
þetta auðvitað tollur, sem nær ekki nokk-
urri átt, en þeir tímar eru nú yfirstand-
andi, að þjóðirnar verndi sig hvor gegn
annari, með tollmúrum, tilþessað draga
úr innflutningi og verndi sína eigin fram-
leiðslu, en fyrir smáþjóðir, eins og okk-
ur íslendinga, sem þurfa að flytja mikið
út, en sökum fámennis, flytjum ekki
mikið inn af þeim vörum sem stærri
þjóðirnar þurfa helzt að losna við, er
erfitt um alla samninga.
Á Ítalíu, sem yfirleitt hefur ekki haft
toll á innfluttum fiski, var settur á 15°/o
verðtollur, síðast i septembermánuði, en
verðið á útsölum helst þar samt óbreytt
eftir sem áður, með öðrum orðum, fram-
boðið var svo mikið að tollálagning þessi
hafði engin áhrif á innlenda heildsölu-
verðið, en gekk eingöngu út yfir fram-
leiðendur. Samskvæmt tilkynningu frá
sendiherra Dana hér í Reykjavík, verð-
ur reiknaður 38 líra tollur á hver 100
kg. á Ítalíu, frá 1. janúar 1932, og virð-
ist því vera hér um enn þá frekari toll-
álagningu að ræða, þar sem heildsölu-
verðið nú upp á síðkastið hefur að eins
verið þar 125 lírur pr. 100 kg.1
Til frekari skýringar skal það tekið
fram, að umræddur verðtollur 15°/*, mun
hafa verið miðaður við 150 líra verð pr.
100 kg., þó að verðið hafi nú verið mik-
ið lægra í langan tíma.
Meðalalýsi er í ár sú eina af sjávar-
afurðum, sem haldist hefur i óbreyttu
verði allt árið, jafnvel hækkað eitthvað
lítilsháttar, hefur verðið verið kringum
80—90 aura pr. kg. Islenzka meðalalýsið
er stöðugt að vinna meira álit i Ame-
ríku og fer mest af því þangað, nú á
seinni árum.
Hrogn hafa lika haldistí sæmilegu verði.
Alls hefur útflutningur af fiski frá ís-
landi verið:
1) Skýring á pessari tollhækkun á Ítalíu, er
héráöórum staöí blaöinu undir fyrirsögninni:
„Tollur á fiski á ítalíu“.