Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 33

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 33
ÆGIR 27 bjargráð fyrir sjávarútveginn«. Samþ. í e. hljóði. 24. Fjárhagsáœtlun Fjórð.þings Sunn- lendingafjórðungs árið 1932. T e k j u r: í sjóði frá fyrra ári kr. 1,000 00 Tillag frá Fiskifélagi íslands — 1,000 00 Kr. 2,000 00 Gj öld: Kostn. við fjórðungsþ. 1931 kr. 450 00 Til kaupa á bát í Porláksh. með settum skilyrðum allt að — 200 00 Til ráðstöfunar á næsta fjórð- ungsþingi — 1,300 00 óviss útgjöld — 50 00 Kr. 2,000 00 Samþykkt í einu hjóði. Að lokum. ávarpaði forseti fulltrúana með nokkrum orðum, hvatti þá til auk- ins starfs og áhuga, þakkaði þeim kom- una og góða samvinnu ogsagðisvo þing- inu slitið. Ól. B. Björnsson. Jóhann lnguason, ritari. Fundargerð fjórðungsþings fiskideilda Vestfirðingafjórðungs. Hinn 20. dag nóvembermánaðar 1931, var háð 10. fjórðungsþing fiskideilda Vestfjarða, sett í lestrarsal Hjálpræðis- hersins á Isafirði af forseta fjórðungsins, Andrési Kristjánssyni i Meðaldal og stýrði hann fundum fram i þinglok. Þessir fulltrúar mættu á þinginu: Fyrir fiskideild ísafjarðar: Eirikur Ein- arsson bæjarfulltrúi og Sveinbjörn Kristjánsson fiskimatsm. Fyrir fiskideildina Tilraun, Hnifsdal: Bjarni Jónasson, verzlunarm. Fyrir fiskideild Bolungarvíkur: Högni Gunnarsson, verzlunarm. Fyrir fiskifélag Súgfirðinga: Kr. A. Kristj- ánsson, póstafgreiðslum. Fyrir fiskideildina Hvöt, Flateyri: Hinrik Guðmundsson, formaður. Fyrir fiskideild Dýrafjarðar: Arngr. Fr. Bjarnason, bóndi, Mýrum. Fyrir fiskideildina Framtiðin, Bíldudal: Jón Jóhannsson, skipstj., Bíldudal. Fyrir fiskideildina Hvöt, Tálknafirði: Knútur Hákonarson, útvegsm., Suðure. Fyrir fiskideildina Röst, Patreksf.: Árni Gunnar Þorsteinsson, póstafgr.maður, Patreksfirði. Fyrir fiskideildina Víkingur: Daniel Egg- ertsson, bóndi, Látrum. Enn fremur mætti á þinginu erindreki Kristján Jónsson, og annaðist hann ritarastarf þingsins. í kjörbréfanefnd voru kosnir: Arngr. Bjarnason, Jón Jóhannssou og Eirikur Einarsson. Nefndin lagði til að kjörbréf fulltrúa yrðu tekin gild, þó taldi nefndín vanta skilriki fyrir þvi, að fulltrúi Flateyrar- deildar væri kosinn á fundi í deildinni, en fékk vitneskju um það i símtali, að svo hefði verið. Enn fremur var ekki fullkomlega víst hvort Bolungavíkurdeild væri formlega gengin í Fiskifélag Islands. — Voru kjör- bréf fulltrúa síðan samþ. í einu hljóði. Ritari las þvi næst upp reikning fjórð- ungsins, skýrði frá gerðum fjórðungs- stjórnarinnar, og lagði til að reikningn- um yrði visað til fjárhagsnefndar, og var það samþ.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.