Ægir - 01.01.1932, Page 34
28
ÆGIR
Eftirfarandi mál voru siðan tekin fyrir
á þinginu, og þessar tillögur sarnþ.:
1. Landhelgismál. Svohljóðandi tillaga
frá Kristjáni Jónssyni samþ. í e. hlj.
»Fjórðungsþingið heldur fast við
það, að sérstakur hraðskreiður bátur
annist strandgæzlu fyrir Vestfjöi ðum
frá 15. maí til 30. nóvbr.«.
2. Símamál. Eftirfarandi tillaga í því
máli frá Kristjáni Jónssyni, samþykkt:
»Fjórðungsþingið tnælir fastlega
með þvi, að eftirfarandi símalínur
verði lagðar þegar á næsta ári,
a. Frá Bíldudal til Selárdals í Arn-
arfirði,
b. Frá Kvígindisdal. að Látrum í
Rauðasandshreppi,
c. Frá Sveinseyri, að Suðureyri i
Tálknafirði. — Skorar fjórðungs-
þingið jafnframt á Fiskiþingið og
stjórn Fiskifélagsins, að veita máli
þessu ítrasta fulltingicc.
3. Fiskimat. Þessi tillaga frá Kristjáni
Jónssyni, samþykkt:
»Fjórðungsþingið skorar fastlega á
stjórn Fiskifélagsins, að hlutast til
um, að gefnar verði út stuttorðar
leiðbeiningar um meðferð íiskjar, og
þeim útbýtt meðal fiskimanna.
Sömuleiðis að beita sér fyrir því,
að ílutt verði erindi í Útvarpið um
fiskimat og meðferð fiskjar, frá þvi
hann kemur úr sjó og þar til hann
fer í skip til útflutnings«.
4. Afla-skgrslur. Tillaga á þessa leið
frá Arngr. Bjarnasyni, samþykkt:
»Fjórðungsþingið lelur nauðsyn-
legt, að haldið verði áfram söfnun
afla-skýrslna eins og undanfarið, og
að skýrslurnar verði sem nákvæm-
astar«.
5. Bryggja í Hnifsdal. Svohlj. ttllaga
frá Eiríki Einarssyni, samþykkt:
»Fjórðungsþingið skorar á Fiski-
þingið, að veita sem allra ríflegastan
styrk til framhalds bryggjugerðar i
Hnifsdal, og felur fulltrúum fjórð-
ungsins að fylgja tillögu þessari fast
fram á næsta Fiskiþingk.
6. Breytingar á lögum Fiskifélagsins.
Nefnd í því máli: Arngr. Bjarnason, Jón
Jóhannsson og Högni Gunnarsson, lagði
fram álit og eftirfarandi tillögu, er samþ.
var í einu hlj.:
»Fjórðungsþingið er samþ. frumv.
til laga fyrir Fiskifélag Islands og
fjórðungsþing, sem samið hefur verið
af milliþinganefnd Fiskiþingsins, og
skorar á næsta Fiskiþing að sam-
einast um þessar breytingar í aðal-
atriðum, svo að þær nái lagagildi
eftir væntanlegt Fiskiþing í vetur.
Fjórðungsþingið telur það og vel
ráðið, að Fiskiþingið leggí væntan-
legum fastasjóði 10 þúsund krónur
af sjóði Fiskifélagsins, 'sem stofnfé«.
7. Síldarsöltun. Svohljóðandi tillaga frá
sömu nefnd og hafði til meðferðar
lagabreytingarnar, var samþykkt:
»Þar sem það er alkunnugt, að
mestur hluti af smærri skipa- og
bátaútvegi hér á Vestfjörðum, verður
eins og nú standa sakir, að liggja
arðlaus eða arðlítill yfir sumarmán-
uðina, en hinsvegar eru oft góð skil-
yrði hér til sildaröflunar, einkum
með reknetaveiðum, þá skorar fjórð-
ungsþingið á útflutningsnefnd og
stjórn Síldareinkasölu Islands, að
leyfa síldarsöltun á a. m. k. 5000
tunnum í Bolungarvik á næstkom-
andi sumri, svo og annarsstaðar á
Vestfjörðum, ef beiðni kemur fram
um það frá hlutaðeigandi fiski-
plássum«.
8. Sfómannaskóli á ísafirði. Nefndin í
því máli: Arugr. Bjainason, Eirikur Ein-
arsson og Jón Jóhannsson, klofnaði, og