Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1932, Side 36

Ægir - 01.01.1932, Side 36
30 ÆGIR sundlaugarbygging í Bolungavík, í líku hlutfalli og aðrar sundlaugar, er félagið hefur styrkt, enda liggi fyrir greinileg skýrsla um kostnað og framkvæmd verksins«. 15. Skipaskoðun. Eftirfarandi nefndar- tillaga samþykkt i einu hlj. »Fjórðungsþingið álítur að flokkun skipa i »Tilskipun um eftirlit með skipum og bátum«, sé ekki nægilega skilmerkileg, og skorar á Fiskiþingið að hlutast til um, að flokkunin verði gerð nákvæmari eftir stærð skipanna, og jafnframt verði skoðunargjaldið ákveðið í samræmi við það. — Enn fremur skorar fjórðungsþingið á fiskideildir fjórðungsins, að hafa eftir- lit með því, að skoðun skipa sé samvizkusamlega framkvæmd, og vinna að auknum skilningi sjófarenda á nauðsyn og gagnsemi eftirlitsins«. 16. Veðurfregnir. Þessi tillaga frá Eiríki Einarssyni samþykkt í einu hlj. »Fjórðungsþingið skorar á stjórn Fiskifélagsins, að hlutast til um, að næturfregnum verði ávalt varpað ut frá Útvarpsstöð Islands, en ekki frá Loftskeytastöðinni i Reykjavík«. 17. Merking veiðarfœra. Eftirfarandi tillaga frá sama fulltrúa, samþjrkkt. »Fjórðungsþingið felur erindreka fjórðungsins, að safna mörkum og undirbúa merkjaskrá, og vinna að öðru leyti að veiðafæra-merkingu í i deildum fjórðungsins«. 18. Fjármál fjórðungsins. Fjárhags- nefndin er í voru: Jón Jóhannsson, Arngr. Bjarnason og Eirikur Einarsson, lagði til, að reikningur fjórðungsins yrði samþykktur athugasemdalaust, og var reikningurinn samþykktur í einu hljóði. Síðan var að tillögu sömu nefndar samþykkt eftirfarandi Fjárhagsáœilun »Fjórðungssambands Vestfjarða« frá 20. nóvember 1931 til 20. nóvember 1932. T e k j u r: 1. Eftirstöðvar frá fyrra ári kr. 366.57 2. Tillag frá Fiskifél. íslands — 1000.00 kr. 1366.57 Gjöld: 1. Til leiðarljósa í Tálknaf. kr. 200.00 2. Til leiðarljósa í Súgandaf. — 200.00 3. Til matsv.námssk. á ísaf. — 100.00 4. Fjórð.þingskostnaðurl931 — 500.00 5. Til sundnámssk. í Dýraf. — 200.00 6. óviss útgjöld.............. — 166.57 kr. 1366.57 Styrkir þeir, sem á áætlun standa, eru bundnir því skilyrði, að þeir útborgist þegar verkið er framkvæmt, og skýrslur og reikningar liggja fjrrir, enda sé aldrei veittur styrkur að meiru en 3ji hlutum. Samþykkt var að reikningsár fjórð- ungsins yrði milli fjórðungsþinga. Enn fremur var í sambandi við fjár- mál fjórðungsins samþykkt svohljóðandi tillaga með samhljóða atkv. »Fjórðungsþingið skorar á næsta Fiskiþing, að veita fjórðungunum 10 þúsund króna tillag hverjum á ári, næsta fjárhagstímabil«. 19. Nœsta fjórðungsþing var samþykkt að halda á ísafirði næstkomandi haust. 20. Kosning jjórðungssijórnar. Forseti var kosinn Arngr. Fr. Bjarnason, eftir endurtekna kosningu, með 6 atkv., Jón Jóhannsson fékk 5 atkv. Ritari var kosinn Kristján Á. Kristjáns- son með 6 atkv.* einnig eftir endurtekna kosningu, Eiríkur Einarsson fékk 5 atkv. Varaforseti var kosinn Eiríkur Einars- son með 6 atkv., Jón Jóhannss. fékk 5 atkv. Vara-rilari var kosinn Sveinbj. Iíristj- ánsson með 7 atkv. Bá kom til umræðu kosning fulltrúa til Fiskiþings á siðasta fjórðungsþingi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.