Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 37
ÆGIR
31
Urðu all-miklar umræður um mál
þetta, og töldu nokkrir fulltrúar orka
tvímælis um, að fulltrúarnir væru lög-
lega kosnir. — Eftir all-harðar umræður
komu fram tillögur, þannig:
a. Frá Högna Gunnarssyni:
»Legg til að kosning fulltrúanna
frá fjórðungsþingi siðastliðið ár verði
látin standa óhögguð«.
b. Frá Jóni Jóhannssyni:
»Legg til að fengnum upplýsing-
um, að kosning fulltrúa á Fiskiþing
frá fyrra ári, verði ónýtt, og að ný
kosning fari fram«.
c. Frá Bjarna Jónassyni:
»Legg lil, að þessu máli verði
vísað frá fjórðungsþinginu, vegna
ófullnægjandi upplýsinga og undir-
búnings«.
Að umræðunum loknum, var tillaga
Högna Gunnarssonar samþ. með 6 atkv.
gegn 5. Hinar tillögurnar þar með fallnar.
Að lokum hóf Arngr. Bjarnason máls
á því, að nauðsyn bæri til að fundar-
sköp væru samin fyrir fjórðungsþingið.
Svohlj. tillaga frá Högna Gunnarssyni
samþykkt.
»Fjórðungsþingið felur stjórninni
að undirbúa fundarsköp fyrir fjórð-
ungsþingið, og leggja frumv. fram í
byrjun næsta fjórðungsþings*.
Siðan var fundarbókin lesin upp og
undirrituð. — Forseti þakkaði að því
búnu fulltrúum þingsetuna og sagði fjórð-
ungsþinginu slitið, sunnudaginn 22. nóv.
kl. 6 síðd.
Var undirrituðum vararitara fjórðungs-
ins, falið að birta framanritaðan útdrátt
úr gerðum þingsins.
Isafirði, 10. desbr. 1931.
Sueinbj. Kristjánsson,
(vararitari).
Fundargerð
9. fjórðungsþings fiskideilda
Norðlendingafjórðungs.
9. fjórðungsþing fiskideilda Norðlend-
ingafjórðungs var sett og haldið í húsi
Verzlunarmannafélags Akureyrar á Ak-
ureyri hinn 3. nóvember 1931, að und-
angenginni löglegri birtingu í dagblöð-
um.
Þingið hófst nefndan dag kl. 11 f. h. og
var sett af forseta fjórðungsstjórnar Norð-
lendinga, Guðmundi Péturssyni útgerð-
armanni, með stuttri og greinilegrí ræðu.
Bauð hann mætta fulltrúa velkomna og
óskaði góðrar sannvinnu á þinginu.
Á þinginu voru mættir:
Frá Akureyrardeild: Guðm. Pétursson
Útgerðarm. og StefánJónasson útg.m.
Frá Hríseyjardeild: Jón Sigurðssonútg.m.
Frá Grenivikurdeild: Þorsteinn Stefáns-
son skipstj.
Frá Húsavikurdeild: Einar Sörensson,
skipstjóri.
Frá Raufarhafnardeild: Páll Halldórsson,
erindreki.
Ennfremur var þá þegar vissa fyrir að
mæta mundu fulltrúar frá Árskógs-
sandsdeild og Dalvíkurdeild á fram-,
haldsfundi samdægurs.
Þá var forseta falið að útvega þing-
skrifara.
í kjörbréfanefnd voru kosnir:
Jón Sigurðsson,
Páll Halldórsson og
Þorsteinn Stefánsson.
Lögðu mættir fulltrúar fram kjörbréf
sín til nefndarinnar.
Var þá gengið að því að undirbúa
dagskrá til þess að flýta fyrir störfum
væntanlegrar dagskrárnefndar, sem form-
lega yrði kosin á framhaldsfundi.
Hreyfðu mættír fulltrúar þá nokkrum