Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 39

Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 39
ÆGIR 33 málinu vísað til Fiskisölusamlagsnefnd- ar og var forseta bætt við í þá nefnd. 5. Lánsstojnun Jyrir smáútgerð lands- manna. Frumrdælandi Þorsteinn Stefáns- son. Eftir uppástungu forseta var mál- inu vísað til Fiskisölusamlagsnefndar. 6. Landhelgisnefnd. Framsögum. Páll Halldórsson. Flutti hann alllanga ræðu og tóku fleiri til máls. Yar málinu síðan vísað til Slysavarnarnefndar. Þegar hér var komið varkl. orðin7,45 e. h. og sleit þá forseti fundi og boðaði jafnframt til næsta þingfundar kl. 10 f. h. á morgun. Miðvikudaginn 4. nóvember, var annar þingfundur settur kl. 11 f. h. Var þá fyrirtekið 7. mál dagskrárinnar: 7. Veðurskeyti og varúðarráðstafanir. Frummælandi Einar Sörensson. Eftir nokkrar umræður var málinu vísað til Slysavarnarnefndar. 8. Fiskisölusamlagsnefndin lagði fram nefndarálit í málinu og var síðan sam- þykkt svohljóðandi ályktanir í 3 liðum: 1. að stofnuð verði sölusamlagsdeild í hverri veiðistöð, fyrir saltaðan ogís- varinn fisk, undir eigin stjórn. 2. að allar sölusamlagsdeildir, á því svæði sem samband þetta nær ylir, hafi eina aðalstjórn kosna afhlutað- eigandi deildum, eftir þvi sem síðar kann að verða ákveðið. 3. að sölusamlagsdeildirnar beiti sér fyrir því, svo fljótt sem fært þykir, að standa fyrir samkaupam veiðar- færa, salts og annars er að útgerð lýtur. 9. Slysavarnarnefndin lagði fram svo hljóðandi tillögu í 3 liðum: a. Fjórðungsþingið skorar á deildar- fulltrúa þingsins, að beita sér fyrir þvi, að stofnuð verði sveit úr Slysa- varnarfélagi íslands, hver í sinni veiðistöð, þar sem ekki er sveit áður. b. Fjórðungsþingið áréttar enn einu sinni þá ákveðnu kröfu, að Fiskifé- lag íslands beiti sér fyrir því, að lögboðið verði almennt sundnám í barna- og unglingaskólum landsins, þannig, að hver unglingur 14 ára gamall, sæmilega hraustur, hafi num- ið sund, það mikið, að hann geti fleytt sér. c. Fjórðungsþingið krefst þess, með at- beina Fiskiþingsins, að framvegis verði ávalt eitt af varðskipum ríkis- ins á verði úti fyrir þar sem þörf krefur, meðan vertíð stendur yfir t. d. fyrir Norðurlandi, tímabilið frá miðjum maí til áramóta. Hver liður var borínn upp fyrir sig og allir samþykktir. 10. Slysavarnarnefndin lagði fram svo hljóðandi tillögu í sjóskaðatryggingar- málinu: »Með lögum nr. 41, frá 19. maí 1930 og reglugerð nr. 61, 10. júlí 1931, er útgerðarmönnum gert að skyldu, að greiða bætur fyrir tapaða muni ísl. sjómanna við sjóslys. Þetta telur Fjórð- ungsþingið í mesta máta óréttlátt og skorar á Fiskiþing íslands að fá þess- um lögum breytt þannig, að öll ábyrgð og tryggingarskylda sé leyst af útgerð- armönnum í þessu efni, en jafnframt sé sjómönnum veittur hægur aðgang- ur að, að tryggja muni þá sem þeir þurfa að hafa með sér i sjóferðir«. Var tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. 11. Fiskisölusamlagsnefndin lagði fram svo hljóðandi tillögu í sildarútvegsmálinu í 3 liðum : 1. a. Fjórðungsþingið ályktar að skora á Fiskiþingið, að beita sér fyrir því, af alefli, að Síldareinkasala íslands verði afnumin nú þegar. 1. b. En jafnframt leggur Fjórðungs-

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.