Ægir - 01.01.1932, Blaðsíða 45
ÆGIR
39
styrkja fjárhagslega fundarhald þetta og
felur fjárhagsnefud að áætla á næsta ári
nokkra upphæð í þessu skyni«.
Samþ. með 6 : 1 atkv.
10. Fisksalan. Nefndartillaga:
»Fjórðungsþingið hvetur mjög ein-
dregið til þess, að stofnuð verði fisksölu-
samlög á samvinnugrundvelli alstaðar á
Austurlandi, þar sem þau eru ekki þegar
tekin til starfa og að hvert þeirra hafi
stjörn og starfrækslu fyrir sig. Er til þess
ætlast, að þau hafi samband sín á milli
um sameiginlega sölu«.
Samþ. með öllum greíddum atkv.
11- Fjárhagsáœtlun fjórðungsþingsins
1932 og 1933, samþykkt þannig:
1932. 1933.
Tekjur: kr. kr.
1. Frá Fiskifél. Islands 1000,00 2000,00
Gj öld:
!• Til djúpmælinga. . . 100,00 100,00
2. Sundlaug Eskifjarðar 400,00
Sundlaugarbygging . 400,00
3. Námsskeið.................. 1000,00
4. óviss útgjöld . . .j. 150,00 150,00
Samtals 1000,00 2000,00
Það er athugandi, að gjaldliður 2 er
veittur með því skilyrði, að 2/s kostnaðar
komi annarsstaðar frá á árinu, og við
Hð 3 er það að athuga, að hann fellur
niður, ef tillag frá Fiskifélaginu verður
ekki nema kr. 1000,00.
Svohljóðandi tillaga samþ. með öllum
greiddum atkv.:
»Fjórðungsþingið samþykkír að fela
stjórninni að ákveða fundarstað fyrir
næsta fjórðungsþing«.
Endurskoðendur reikninga Fjórðungs-
þingsins voru kosnir:
Sveinn Árnason, Vilhjálmur Árnason.
12. Ilosin stjórn Fjórðungsþingsins.
Kosningu hlutu: Forseti: Níels Ing-
varsson með 3 atkv. Ritari: Hermann
Þorsteinsson með 6 atkv. Varaforseti:
Sveinn Árnason með 4 atkv. Vararitari:
Vilhjálmur Árnason með 4 atkv.
Gerðabók lesin upp og samþ.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fjórðungsþingi slitið.
Níels Ingvarsson forseti.
Herm. Þorsteinsson. Hallgr. Bóasson.
Vilhjálmur Árnsson. Carl Jenssen.
Ölver Guðmundsson. Friðrik Steinsson.
Sveinn Áfnason.
t
Oddviti Jóhann Ingvasson
frá Kefllavík, drukknaði hinn 21. janú-
ar á m. b. »Huldu« frá s. st. Hann var
fulltrúi á Fiskiþingi Fiskifélags Islands.
Ræðismaður K. Mikkelsen
Vendsyssel, lést að heimili sínu i Bryssel
hiun 24. janúar s. 1., 76 ára að aldri.
Hann var formaður Fiskverzlunar- og
Fiskveiðafélags Danmerkur.
Kafteinn K. K. von Lowsow
er skipaður yfirforingi á varðskipinu
»Fylla« og kafteinn N. T. L. Michaelsen,
yfirforingi á varðskipinu »Hvidbjörnen».
Fiskiþing er kallað saman hinn 15.
febrúar n. k.