Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
Vorið er ekki langt undan, náttúran vaknar
til lífsins og tilveran verður öll svo yndisleg.
Starfið hjá ungmenna- og íþróttafélögum
er jafnan yfirgripsmikið og nóg um að vera
í hreyfingunni.
Í sumar verður Landsmót á Akureyri og
Unglingalandsmót á Sauðárkróki. Lands-
mótið á Akureyri er jafnframt 100 ára
afmælismót Landsmóta og ætla Akureyr-
ingar og Eyfirðingar sér að gera þeim sem
sækja mótið minnisstætt með því að bjóða
upp á góða dagskrá og fyrsta flokks íþrótta-
aðstöðu.
Eins og flestum er kunnugt varð að flytja
Unglingalandsmótið til Sauðárkróks. Vegna
efnahagsástandsins og stöðu á peninga-
mörkuðum óskuðu Grundfirðingar eftir því
að fá mótinu, sem átti að halda á Grundar-
firði, frestað um eitt ár. Sex aðilar óskuðu
eftir því að fá mótið í þeirra stað og varð
það niðurstaða stjórnar UMFÍ að mótið yrði
haldið á Sauðárkróki 2009. Öll aðstaða er
til fyrirmyndar á Sauðárkróki, en þar voru
haldin Landsmót og Unglingalandsmót
2004 með miklum glæsibrag.
Verkefni UMFÍ standa ávallt fyrir sínu og
sum lifa um langan tíma. Eitt af þessum verk-
efnum er „Fjölskyldan á fjallið“. Þetta er verk-
efni sem fjölskyldan getur sameinast um að
taka þátt í. Héraðssambönd UMFÍ hafa valið
fjöll heima í héraði sem áhugavert er að
ganga á. Á vefnum ganga.is og eins í bókinni
Göngum um Ísland má finna þau fjöll sem í
boði eru hverju sinni. Á síðasta ári var vefur-
inn uppfærður og gerður mjög aðgengileg-
ur. Þar má finna ýmsar nytsamlegar upplýs-
ingar sem áhugasamir um útivist geta nýtt sér.
Á síðasta ári var verkefni sem ber heitið
„Gæfuspor“ hrundið af stað á fimm stöðum
á landinu. Verkefnið hefur það markmið að
hvetja fólk sem er sextíu ára og eldra til að
fara út og ganga sér til ánægju og heilsu-
bótar. Sparisjóðirnir eru aðalsamstarfsaðilar
UMFÍ um verkefnið ásamt heilbrigðisráðu-
neytinu og Lýðheilsustöð. Bæklingur, sem
ber sama nafn og verkefnið, er gefinn út
samhliða því. Í honum er að finna ýmsar hag-
nýtar upplýsingar fyrir göngufólk og mun
hann liggja frammi m.a. í sparisjóðunum.
Vonandi bætast fleiri staðir í hópinn í sumar.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ hóf starfsemi sína
í fyrra og heppnaðist með afbrigðum vel.
Stefnt er því að skólinn verði rekinn með
svipuðu sniði í sumar. Skólinn verður á þeim
Margt í boði fyrir þig
Formaður UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir
stöðum á landinu þar sem haldin hafa verið
Unglingalandsmót og Landsmót og búið er
að koma upp góðri aðstöðu til æfinga og
keppni í frjálsum íþróttum.
Í lok febrúar var skrifað undir samstarfs-
samning milli UMFÍ, LH og Hestamannafé-
lagsins Geysis um að halda meistaradeild
UMFÍ í hestaíþróttum barna og unglinga.
Mótið hefur farið vel af stað og er ætlunin
að gera þessa deild að árvissum viðburði.
Úrtökumót fyrir deildina verða á Unglinga-
landsmótum UMFÍ og það fyrsta verður á
Sauðárkróki í sumar. Markmið UMFÍ með
meistaradeildinni er að fjölga iðkendum í
hestaíþróttum á Unglingalandsmótum og
styðja við útbreiðslu íþróttarinnar. Gaman
væri ef hægt væri að koma slíkum deildum
á í öllum landsfjórðungum.
Ungmennaráð UMFÍ hefur verið starfandi
síðan 2003. Í ráðinu eiga sæti ungmenni á
aldrinum 18–25 ára, áhugasamir og jákvæð-
ir einstaklingar sem láta sig málefni ungs
fólks varða. Ráðið tók meðal annars þátt í
undirbúningi ráðstefnunnar Ungt fólk og
lýðræði sem UMFÍ stóð fyrir á Akureyri 4.–5.
mars sl. og þótti takast vel. Ráðið hefur
einnig verið virkur þátttakandi í undirbún-
ingi viðburða á vegum forvarnaverkefnisins
Flott án fíknar sem hefur verið starfandi
innan UMFÍ frá árinu 2007.
Af framansögðu má ljóst vera að starfið á
árinu hefur verið og verður með blómleg-
um hætti eins og hreyfingarinnar er von og
vísa. Það er margt í boði fyrir þig að taka
þátt í.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
formaður UMFÍ
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Frá Unglingalandsmóti UMFÍ sem
haldið var í Þorlákshöfn sl. sumar.