Skinfaxi - 01.02.2009, Side 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Á aðalfundi ungmennafélagsins Vöku,
sem haldinn var í Þjórsárveri 2. janúar
sl., tilkynnti Almar Sigurðsson, formað-
ur umhverfisnefndar Flóahrepps, að
ákveðið hefði verið að veita ungmenna-
félögunum í Flóahreppi umhverfisverð-
laun hreppsins árið 2008 fyrir áratuga
störf að umhverfismálum. Afhenti
hann formanni félagsins áletrað skjal
þess efnis auk 100.000 kr. Á fundinum
kom fram að starf félagsins á síðasta
ári hefði verið blómlegt.
Ýmsar viðurkenningar voru veittar,
en besta afrek samkvæmt töflu Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins vann Harald-
ur Einarsson í langstökki, 6,31 m, sem
gefur 774 stig. Besta afrek samkvæmt
unglingastigatöflu vann Ingunn Harpa
Bjarkadóttir í langstökki án atrennu,
2,46 m, sem gefur 896 stig.
Íþróttamaður ársins var valin Guðrún
Inga Helgadóttir í Súluholti en hún
varð grunnskólameistari og unglinga-
landsmótsmeistari í glímu á árinu og
einnig Íslandsmeistari og unglinga-
landsmótsmeistari í spjótkasti. Guðrún
er 11 ára. Félagsmálabikarinn hlaut
Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir fyrir þrot-
laust og óeigingjarnt starf fyrir félagið
á undanförnum árum.
Undir liðnum önnur mál bar ýmis-
legt á góma. Mikil ánægja er með nýtt
fyrirkomulag á íþróttaæfingum en þær
eru nú orðnar sameiginlegar með
Ungmennafélögum í Flóahrepp i
veitt umhverfi sverðlaun-
nágrannafélögunum Samhygð og
Baldri. Þá eru æfingar þeirra yngstu nú
orðnar samtvinnaðar skólastarfinu í
Flóaskóla sem hefur skilað sér í mikilli
fjölgun iðkenda.
Leiklist er orðin viðamikill þáttur í
starfi félagsins og eru nú hafnar æfing-
Haraldur Einarsson, formaður Vöku (til
vinstri), tekur við umhverfisverðlaunu-
num úr hendi Almars Sigurðssonar, for-
manns umhverfisnefndar Flóahrepps.
ar á leikriti, Páskahreti, sem sýnt verð-
ur í Þingborg í vetur í samstarfi við
nágrannafélögin. Í lok fundarins kom
fram að 15 manns hefðu gengið í
félagið á árinu og voru þeir boðnir
velkomnir með lófaklappi.
12. Unglingalandsmót UMFÍ
verður haldið á Sauðárkróki
dagana 31. júlí til 2. ágúst í sumar.
Á dögunum voru undirritaðir samn-
ingar á Sauðárkróki annars vegar á
milli unglingalandsmótsnefndar og
Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Ung-
mennafélags Íslands og Ungmenna-
sambands Skagafjarðar hins vegar.
Helstu keppnisgreinar á Sauðár-
króki verða; frjálsar íþróttir, knatt-
spyrna, körfubolti, sund, skák, glíma,
golf, hestaíþróttir og mótocross.
Samhliða þessum greinum verða
svokallaðar kynningargreinar en þar
bjóðum við þátttakendum að prófa
ýmsar aðrar greinar.
Á Sauðárkróki er góð aðstaða til
íþróttaiðkunar og keppni og þar er
nú þegar frjálsíþróttavöllur með
gerviefnum á hlaupabrautum.
Flestar íþróttagreinarnar verða
mjög miðsvæðis.
Unglingalandsmótið á Sauðárkróki
Sigurjón Þórðarson, formaður Ungmennasambands Skagafjarðar, Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Guðmundur Guðlaugsson, sveitarstjóri Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar, og Halldór Halldórsson, formaður unglingalandsmótsnefndar.