Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 1. tbl. 2009
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar
Bragi Stefánsson, Sigurður Guðmundsson,
Hafsteinn Óskarsson o.fl.
Forsíðumynd: Pjetur Sigurðsson.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R.
Möller og Sigurður Guðmundsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Laugavegi 170–172, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og
verkefnisstjóri forvarna,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri.
Sigurður Guðmundsson, fræðslumál.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Hringur Hreinsson, meðstjórnandi,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
Jóhann Tryggvason, varastjórn,
Einar Jón Geirsson, varastjórn.
Forsíða:
Stóra myndin: Frá vetrarleikunum í
Tindastóli.
Fyrir neðan til vinstri: Frá ráðstefnunni
Ungt fólk og lýðræði.
Til hægri: Ungmenni í frjálsíþróttaskóla í
Falun í Svíþjóð.
Á þessu ári blasa við mörg spenn-
andi og áhugaverð verkefni hjá
Ungmennafélagi Íslands. Tvö stór-
mót verða haldin í sumar, annars
vegar Landsmót á Akureyri og
hins vegar Unglingalandsmót á
Sauðárkróki. Unglingalandsmótið
átti upphaflega að vera í Grundar-
firði. Vegna efnahagsþrenginga
var ákveðið að fresta mótinu í
Grundarfirði um eitt ár. Stjórn
UMFÍ komst síðar að þeirri niður-
stöðu að halda mótið á Sauðár-
króki. Þar er öll aðstaða til fyrir-
myndar, en eins og flesta rekur
minni til héldu Skagfirðingar
síðast Unglingalandsmót 2004
með miklum myndarbrag.
Landsmótið á Akureyri verður
merkilegt fyrir marga hluta sakir
en á þessu ári verður liðin öld frá
því að fyrsta Landsmótið var hald-
ið þar. Undirbúningur fyrir mótið
hefur staðið lengi yfir en á Akur-
eyri er að rísa glæsileg aðstaða
sem mun nýtast við mótshaldið.
Íslendingar verða örugglega meira
á faraldsfæti um landið sitt í sum-
ar en áður og því má búast við
góðri þátttöku í báðum mótunum
enda eru þau tilvalin vettvangur
fyrir fjölskylduna til að verja tím-
anum saman.
Eins og endranær stendur ung-
mennafélagshreyfingin fyrir ýms-
um verkefnum og má í því sam-
bandi nefna frjálsíþróttaskólann
sem hóf göngu sína í fyrrasumar,
í samvinnu við Frjálsíþróttasam-
band Íslands. Verkefnið Fjölskyld-
an á fjallið og Göngum um Ísland
á sinn fasta stað og hefur þátttak-
an í þessu verkefni ávallt verið
mikil í gegnum árin.
Það hefur líklega aldrei skipt
meira máli en á þeim tímum sem
við lifum nú að aðgengi barna og
unglinga sé sem best að iðkun
íþrótta og þátttöku í æskulýðs-
starfi. Hér skiptir sköpum að allir,
óháð efnahag, geti stundað íþrótt-
ir sér til hressingar og heilsubótar.
Töluverð umræða hefur verið um
þetta á undanförnum mánuðum í
kjölfar kreppunnar og allir virðast
vera sammála um að í þessum efn-
um megi ekki slaka á. Gott að-
gengi er það sem skiptir öllu máli.
Sú uppbygging á íþróttamann-
virkjum sem hefur orðið á síðast-
liðnum árum, tengd Unglinga-
landsmótum og Landsmótum, er
farin að bera ríkulegan ávöxt. Það
var líka vissulega tilgangurinn í
upphafi að þessi uppbygging
myndi skila sér með tíð og tíma og
efla íþróttastarfið í þeim byggðum
þar sem þessi mót eru haldin.
Þetta hefur gengið eftir og iðk-
endum hefur fjölgað til muna.
Góður árangur keppenda frá þeim
stöðum, þar sem Unglingalands-
mót hafa verið haldin, hefur komið
berlega í ljós á mótum sem haldin
hafa verið á vegum Frjálsíþrótta-
sambandsins í nýju Höllinni í
Laugardalnum í vetur. Íþróttafólk-
ið frá þessum stöðum hefur sýnt
þar umtalsverðar framfarir.
Það er ánægjulegt fyrir þá sem
standa fyrir þessum mótum að
sjá þetta gerast. Árangurinn á
mótunum er glæsilegur og á ekki
síst ríkisvaldið þakkir skilið sem
komið hefur myndarlega að upp-
byggingunni.
Fjármunum ríkisins er vel varið
með þessum hætti og þeir skila
sér alla leið. Byggðirnar kringum
keppnisstaðina standa sterkari
eftir og börn, unglingar og fullorð-
ið fólk geta æft og stundað íþróttir
sér heilsubótar við aðstæður eins
og þær gerast bestar á hverjum
tíma. Unglingalandsmótin eru eitt
sterkasta innlegg í íþróttastarf hér
á landi á síðari tímum og þeim vex
fiskur um hrygg með hverju ári.
Vorið er ekki langt undan og oft
er sagt að sumarið sé tíminn. Á
þessum tímum í þjóðfélaginu er
brýnt að við stöndum saman og
nýtum tímann vel með börnum
okkar og fjölskyldum. Sá tími er
vel nýttur og hann skilar sér marg-
falt til baka þegar upp er staðið.
Jón Kristján Sigurðsson
ritstjóri
Gott aðgengi að íþróttum
getur skipt sköpum
Leiðtogaskóli NSU
verður haldinn á
Grænlandi í sumar
NSU (Norræn æskulýðssamtök)
bjóða ungu fólki á aldrinum 18–30
ára í leiðtogaþjálfunarbúðir á Græn-
landi í sumar. Þetta er kjörið tæki-
færi fyrir ungt, áhugasamt fólk sem
hefur reynslu úr starfinu t.d. sem
þjálfari, starfsmaður, stjórnarmaður
félagsins eða deildar.
Allar upplýsingar er hægt að fá á
skrifstofu UMFÍ í síma 568 2929. Akureyri 9. – 12. júlí 2009