Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Þann 17. mars sl. var á Akureyri skrifað
undir styrktarsamninga við fimm fyrir-
tæki vegna Landsmóts UMFÍ 9.–12. júlí
í sumar. Aðalstyrktaraðilar eru Alcoa
Fjarðaál og KEA og einnig leggja
Icelandair Group, Saga Capital og
Landsbankinn mótshaldinu lið með
myndarlegum hætti. Í máli forsvars-
manna UMFÍ, landsmótsnefndar og
þessara fimm fyrirtækja var látin í ljós
mikil ánægja með að þessir samningar
væru nú í höfn og eru menn staðráðnir
í því að vinna ötullega að því að halda
glæsilegt Landsmót á Akureyri í sumar.
Af hálfu Ungmennafélags Íslands
skrifaði Helga G. Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, undir samningana og
Kristján Þór Júlíusson undirritaði þá af
hálfu landsmótsnefndar. Kristján Þór
lýsti við þetta tækifæri yfir mikilli ánægju
með samstarf við þessi fyrirtæki. Hér
væri um gríðarlega mikilvægan áfanga
að ræða í mótshaldinu í sumar. Samn-
ingarnir bæru vott um að forsvarsmenn
fyrirtækjanna vildu leggja æskulýðs- og
íþróttastarfi lið og það væri æsku þessa
lands dýrmætt veganesti.
„Þið forsvarsmenn þessara samstarfs-
fyrirtækja okkar við þetta Landsmót eigið
heiður skilinn að leggja þessu lið,“ sagði
Kristján Þór og bætti við að landsmóts-
nefnd hefði unnið mjög gott starf í sam-
vinnu við UMSE, UFA og Akureyrarbæ.
„Það er mikilvægt að við horfum með
bjartsýni fram á veginn. Nú er það verk-
efni okkar mótshaldara að standa fyrir
glæsilegu og eftirminnilegu Landsmóti
og við munum leggja okkur fram um
það,“ sagði Kristján Þór Júlíusson.
Halldór Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri KEA, sagðist vera stoltur af því
fyrir hönd KEA að vera annar tveggja
aðalstyrktaraðila Landsmótsins á Akur-
eyri í sumar. Stuðningur við æskulýðs-
og íþróttastarf hefði ætíð verið einn af
mikilvægum þáttum í starfsemi KEA
og því rímaði stuðningur félagsins við
Landsmótið í sumar vel við þessa
áherslu félagsins.
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Alcoa Fjarðaáls, sagði að fyrirtækið væri
ekki gamalt á Íslandi en það hefði nú
þegar látið til sín taka í stuðningi við
íþróttastarf, fyrst og fremst á heimavelli
Alcoa á Austurlandi. Með því að styðja
við Landsmót UMFÍ, sem væri fyrir allt
landið, vildi Alcoa stækka hringinn, ef
svo mætti að orði komast. „Það er okkur
sannarlega akkur og heiður að tengjast
ungmennafélagsstarfinu með þessum
hætti,“ sagði Tómas Már.
Þórleifur Stefán Björnsson, fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar hjá Saga
Capital fjárfestingarbanka, sagði for-
svarsmenn fyrirtækisins stolta af því að
tengjast Landsmóti UMFÍ á Akureyri.
Gott væri að setja sér ákveðin markmið
með mótið í huga og því væri ekki til
setunnar boðið að hefjast handa við
markvissa þjálfun fyrir maraþonhlaup-
Skrifað undir styrktarsamninga
vegna Landsmóts UMFÍ á Akureyri
Undirritun styrktarsamninga.
Frá vinstri: Helga G. Guðjónsdóttir,
formaður Ungmennafélags Íslands,
Þórleifur Stefán Björnsson, fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar hjá Saga
Capital, Halldór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, Helgi Teitur
Helgason, útibússtjóri Landsbankans
á Akureyri, Ingi Þór Guðmundsson,
forstöðumaður sölu- og markaðs-
sviðs Flugfélags Íslands, Tómas Már
Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls,
og Kristján Þór Júlíusson, formaður
landsmótsnefndar.
ið, sem verður laugardaginn 11. júlí í
tengslum við Landsmót UMFÍ, en þess
má geta að Þórleifur hefur í gegnum tíð-
ina tekið þátt í ófáum almenningshlaup-
um á Íslandi.
Ingi Þór Guðmundsson, forstöðu-
maður markaðssviðs Flugfélags Íslands,
skrifaði undir samstarfssamninginn fyr-
ir hönd Icelandair Group en innan
þeirrar samstæðu eru m.a. Icelandair,
Icelandair Cargo, Flugfélag Íslands og
Edduhótelin. Ingi Þór sagði að í gegnum
tíðina hefðu Icelandair og Flugfélag
Íslands stutt vel og dyggilega við íþrótta-
starf í landinu og því færi vel á því að
koma að Landsmóti UMFÍ. „Það er
auðvitað rúsínan í pylsuendanum að
tengjast Landsmóti UMFÍ á Akureyri
í sumar með þessum hætti – stærsta
íþróttamóti á Íslandi.“
Helgi Teitur Helgason, útibússtjóri
Landsbankans á Akureyri, fagnaði því
fyrir hönd bankans að koma að málum
við undirbúning og framkvæmd Lands-
móts UMFÍ í sumar. „Ef veðrið verður
gott, sem mér skilst að sé búið að lofa,
þá getur þetta einfaldlega ekki klikkað,“
sagði Helgi Teitur.