Skinfaxi - 01.02.2009, Síða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Lið ÍR vann heildarstigakeppni félaga á
Meistaramóti unglinga 15–22 ára sem
fram fór í Laugardalshöllinni helgina
31. janúar til 1. febrúar. ÍR hlaut alls 354
stig, FH varð í öðru sæti með 198 stig
og Fjölnir í þriðja sæti með 124 stig.
ÍR-ingar unnu stigakeppnina í þremur
aldursflokkum, í meyja-, drengja- og
ungkvennaflokki. Breiðablik hafði sig-
ur í flokki sveina, FH í flokki stúlkna og
Fjölnir í flokki ungkarla 19–22 ára.
Eitt Íslandsmet féll á hvorum keppn-
isdegi, Birna Varðardóttir, FH, bætti
eigið meyjamet í 3000 m hlaupi þegar
hún hljóp á 11:03,36 mín. Þá bætti
stúlknasveit FH metið í 4x200 m boð-
hlaupi um eina sek., en þær sigruðu á
1:49,05 mín. Sveitina skipuðu þær Dóra
Hlín Loftsdóttir, Heiðdís Arna Lúðvíks-
dóttir, Sara Úlfarsdóttir og Heiður Ósk
Eggertsdóttir.
Helga Margrét sigursælust á Meistaramótinu
Helga Margrét Þorsteinsdóttir var
sigursælust á mótinu en hún sigraði í
öllum sex keppnisgreinum í stúlkna-
flokki, 60 m hlaupi, 60 m grindahlaupi,
200 m hlaupi, langstökki, hástökki og
kúluvarpi.
Hafdís Sigurðardóttir, HSÞ, sigraði í
fjórum greinum í flokki ungkvenna, 60
m hlaupi, 200 m hlaupi, 400 m hlaupi
og langstökki.
Bjarni Malmquist Jónsson, Fjölni,
sigraði í þremur greinum í flokki ung-
karla, 60 m grindahlaupi, langstökki
og þrístökki.
Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, sigr-
aði í þremur greinum í flokki ung-
kvenna, 800 m hlaupi, 1500 m hlaupi
og 3000 m hlaupi.
Ólafur Konráð Albertsson, ÍR, sigraði
í þremur greinum í ungkarlaflokki, 800
m hlaupi, 1500 m hlaupi og 3000 m
hlaupi.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
sigraði í sex greinum á Meistaramóti
unglinga 15–22 ára.
Keppendur frá 8 aðildarfélögum UÍA
reyndu með sér á Meistaramóti UÍA í
frjálsum íþróttum innanhúss sem var
haldið í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyð-
arfirði 25. janúar sl. Keppt var í flokki 8
ára og yngri, 9–10 ára, 11–12 ára, 13–14
ára og 15 ára og eldri. Á sjötta tug kepp-
enda frá 8 félögum öttu kappi hver
við annan og var árangur almennt séð
góður.
Aðstaða til frjálsíþróttaiðkunar í
Fjarðabyggðarhöllinni er með ágæt-
Góður árangur hjá UÍA í frjálsum íþróttum
um en þar eru spretthlaupsbraut með
gerviefni og stökkgryfja auk búnaðar
til hástökksiðkunar. Keppt var í 60 m
hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi
og boltakasti í yngstu flokkunum. Að
auki var keppt í hringhlaupi en þar voru
hlaupnir hringir á ómældri braut. Vegna
tímaskorts varð að falla frá keppni í
þrístökki.
Bestu afrek mótsins voru unnin í
hástökki. Flest stig í flokki 11–14 ára
fékk Heiðdís Sigurjónsdóttir, 13 ára, úr
Hetti, er hún vann sér inn 932 stig með
því að stökkva yfir 140 cm. Það dugði
henni þó ekki til sigurs en hún keppti í
flokki 13–14 ára telpna. Sigurvegarinn,
Erla Gunnlaugsdóttir, 14 ára, úr Hetti,
fór yfir sömu hæð og Heiðdís, en í færri
tilraunum.
Í flokki 15 ára og eldri stökk Karítas
Hvönn Baldursdóttir, 16 ára, úr Ásnum,
yfir 140 cm í hástökki og vann sér
þannig inn 828 stig.
Keppendur frá USÚ náðu góðum
árangri á Meistaramóti Íslands í
frjálsum íþróttum í aldursflokknum
15–22 ára sem fram fór dagana 31.
janúar til 1. febrúar sl. Fimm ung-
menni frá USÚ tóku þátt í mótinu
og unnu til fimm verðlauna sem
voru eitt gull, tvö silfur og tvö brons.
Sveinbjörg Zophoníasdóttir
landaði Íslandsmeistaratitli í þrí-
stökki, 17–18 ára, er hún stökk
10,88 m og setti þar með glæsilegt
USÚ-met, en gamla metið hennar
var 10,52 m. Hún hlaut einnig silfur
í langstökki og setti USÚ-met þar
líka er hún stökk 5,39 m, en gamla
metið hennar var 5,25 m. Síðan varð
hún í 5. sæti í 60 m hlaupi og setti
þar einnig nýtt USÚ-met, hljóp á
tímanum 8,40 sek. en gamla metið
Fjögur USÚ-met voru sett í frjálsum íþróttum
hennar var 8,53 sek. Sveinbjörg er mik-
ið efni og verður fróðlegt að fylgjast
með gengi hennar í framtíðinni.
Jón Snorri Þorsteinsson gerði sér lítið
fyrir og kastaði 5,5 kg kúlunni 11,98 m
og varð í 2. sæti og bætti einnig gamla
innanhússmet USÚ sem hann átti og
var 11,34 m. Jón er greinilega í fremstu
röð kastara í sínum aldursflokki á
Íslandi.
Fannar Blær Egilsson hljóp 800 m
á tímanum 2:10,97 sek. og hafnaði í
3. sæti sem telst góður árangur þótt
hann væri talsvert frá sínum besta tíma
utanhúss sem er 2:06,44 sek. Hann er
líka á yngra ári í 17–18 ára flokki.
Fannar stökk síðan hástökk og varð í 4.
sæti, stökk 1,68 m. Fannar hefur verið
að glíma við meiðsli í hnjám en nú er
það allt að koma hjá honum og eigum
við væntanlega eftir að sjá hann
vinna góð afrek í framtíðinni.
Einnig keppti Örvar Guðnason á
mótinu og stóð sig vel. Örvar var
mjög nálægt USÚ-meti Bjarna Malm-
quist í langstökki, en það er 5,68 m,
en Örvar stökk 5,58 m og hafnaði í
5. sæti. Hann keppti líka í þrístökki
og varð fimmti. Svo bætti hann sinn
besta árangur í hástökki þegar hann
stökk 1,65 m. Örvar er efni í góðan
stökkvara, æfir vel og hefur sýnt
miklar framfarir.
Björn Ármann Jónsson varð síðan
sjötti í kúluvarpi (5,5 kg) og kastaði
9,75 m. Þetta er fyrra árið sem hann
kastar þessari þyngd af kúlu og er
sem sagt á fyrra ári í flokknum 17–18
ára eins og Fannar og Sveinbjörg.