Skinfaxi - 01.02.2009, Qupperneq 15
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15
Á héraðsmóti HSK
í fullorðinsflokki í
frjálsíþróttum, sem
haldið var í íþrótta-
húsinu á Hvolsvelli
22. janúar sl., bar það
helst til tíðinda að
Ágústa Tryggvadótt-
ir vann það afrek í
þriðja sinn að vinna allar kvennagrein-
arnar. Alls sigraði Ágústa í sex grein-
um. Sama leikinn lék hún árin 2006 og
2007, en í fyrra var hún ekki á meðal
þátttakenda. Skráning var betri en und-
anfarin ár, t.d. voru 18 skráðir til leiks í
kúluvarpi karla.
Ólafur Guðmundsson, sem nýlega
gekk í raðir Umf. Laugdæla, sigraði í
fjórum greinum. Hann var óheppinn í
stangarstökki þar sem hann felldi
byrjunarhæð og hann varð þriðji í
hástökki, en fyrstu fjórir stukku allir
jafnhátt, eða 1,75 m.
Ágústa vann allar greinar
sínar á héraðsmóti HSK
Ágústa Tryggvadóttir, Umf. Selfoss, sigr-
aði í sex greinum á héraðsmóti HSK.
Áfram
Skólahreysti!
– AÐALSTYRKTARAÐILI SKÓLAHREYSTI
Kíkið á
Skólahrey
sti-síðuna
á Faceboo
k!
Sýnt er frá Skólahreysti MS á Rúv á laugardögum
kl. 18. Rúv sýnir beint frá úrslitakeppninni 17. apríl
og hefst keppnin kl. 20.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Íþróttahátíð FÁÍA
haldin í 18. skipti
Árlegur Íþrótta- og leikdagur Félags áhugafólks um
íþróttir eldri borgara, FÁÍA, var haldinn í Austurbergi
25. febrúar sl. Hjörtur Þórarinsson, varaformaður FÁÍA,
setti hátíðina og kynnir var Guðrún Nielsen, formaður
FÁÍA. Ernst Backman söng einsöng.
Á hátíðinni sýndu nokkrir sýningarflokkar úr Reykja-
vík, Hafnarfirði og af Akranesi atriði við mikla hrifn-
ingu viðstaddra. FÁÍA hefur haft veg og vanda af þess-
ari hátíð sem var nú haldin í 18. skipti. Hátíðinni vex
fiskur um hrygg með hverju árinu enda fer áhugi vax-
andi á meðal eldra fólks á hreyfingu af öllu tagi.