Skinfaxi - 01.02.2009, Page 16
16 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þrjú ungmenni í frjálsíþróttaskóla í Falun í Svíþjóð:
Það hlýtur að vera draumur margra
íþróttamanna að stunda menntaskóla-
nám samhliða íþróttaiðkun við fullkomn-
ar aðstæður á erlendri grundu. Ungt og
efnilegt frjálsíþróttafólk úr frjálsíþrótta-
deild Breiðabliks dvelur nú við nám og
æfingar í sænska bænum Falun. Þetta
eru þau Gísli Brynjarsson, Guðrún
María Pétursdóttir og Jón Kristófer
Sturluson sem standa öll framarlega í
aldursflokkum sínum. Þau eiga öll
Íslandsmet í sínum flokkum, en Gísli á
Íslandsmet í stangarstökki og tugþraut.
Guðrún leggur áherslu á hástökk og hef-
ur hún sýnt miklar framfarir. Helstu
greinar Jóns eru tugþraut, hlaup og
hástökk. Þau eru öll mjög vaxandi og
láta mjög vel af dvölinni í Svíþjóð.
Brynjar Örn Gunnarsson, faðir Gísla,
segir að þau hafið farið utan fyrir til-
stuðlan Karenar Ingu Ólafsdóttur sem
þjálfaði um árabil í Svíþjóð. Hún er fyrr-
verandi nemandi skólans í Falun en þess
má geta að hún er í dag verkefnisstjóri
unglingamála hjá Frjálsíþróttasambandi
Íslands.
„Þetta er mikill og góður skóli fyrir
krakkana. Dvölin úti hefur þroskað þau
mikið og svo læra þau tungumálið til
hlítar. Það var árið 2006 sem hópur frá
Breiðabliki fór í æfingaferð til Falun og
þá kynntust krakkarnir því sem þessi
skóli hafði upp á að bjóða. Eftir þá ferð
„Okkur hefur farið fr am
á mörgum sviðum“
opnaðist möguleiki til að fara þangað
til náms samhliða frjálsíþróttaiðkun,“
sagði Brynjar Örn Gunnarsson í samtali
við Skinfaxa.
Skinfaxi náði tali af þremenningun-
um og spurði þau út í dvölina.
– Hvað hafið þið stundað frjálsar íþróttir
lengi?
„Við höfum stundað frjálsar frá 10 ára
aldri.“
– Hvernig kom það til að þið fóruð utan í
þennan skóla?
„Gamli þjálfarinn okkar, hún Karen
Inga, stundaði frjálsar hér úti fyrir
nokkrum árum og sagði okkur frá þess-
um stað. Hún hjálpaði okkur við að
komast inn í skólann.“
– Hvernig líkar ykkur og hvað verðið þið
lengi?
,,Okkur líkar mjög vel hér. Þetta er
mjög vinalegur bær og mjög góður til
þess að iðka frjálsar. Við stefnum á að
vera 3–4 ár. En við ætlum að skoða mál-
in til hlítar þegar skólaárinu lýkur í vor.“
– Hvernig er venjulegur skóladagur?
„Skóladagurinn er mjög svipaður og
á Íslandi nema það að við fáum heitan
mat í hádeginu og líka nesti sem við
borðum fyrir eða eftir æfingu. Eftir
æfinguna er haldið heim og heimilis-
störfunum sinnt.“
– Hefur ykkur farið mikið fram síðan þið
fóruð út?
„Okkur hefur farið mikið fram á
mörgum sviðum og við erum mjög
ánægð með að hafa farið í skólann hér.
Við höfum lært heilmargt og veran hér
úti hefur þroskað okkur á margan hátt.“
– Mælið þið með því að ungir frjáls-
íþróttamenn fari utan í svona skóla?
„Við mælum eindregið með því.
Það er mjög gott að skipta svona um
umhverfi og þess þá heldur ef þjálfunin
er rosa góð.“
– Hvernig er félagslífið og kynnist þið
ekki mörgum krökkum?
„Félagslífið er almennt ágætt. Það
var reyndar erfitt að komast inn í það í
byrjun vegna tungumálsins. Þegar þeirri
hindrun er hrint úr vegi eru allir vegir
færir ef svo má segja. Þá opnast rosalega
mikið fyrir manni og þá alveg sérstak-
lega félagslegi þátturinn,“ sögðu krakk-
arnir að lokum í spjallinu við Skinfaxa.
Gísli Brynjarsson, Guðrún
María Pétursdóttir og Jón
Kristófer Sturluson eru í
frjálsíþróttaskóla í Falun
í Svíþjóð.