Skinfaxi - 01.02.2009, Side 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Mjög góð þátttaka hefur verið á
félagsmálanámskeiðum þeim sem
haldin hafa verið á vegum UMFÍ í
vetur. Um 110 manns hafa sótt nám-
skeiðin sem haldin voru á Akureyri,
í Svarfaðardal, á Kirkjubæjar-
klaustri, Hrollaugsstöðum, Höfn í
Hornafirði og í Búðardal. Einnig
voru nokkrir grunnskólar heimsótt-
ir og námskeið haldin þar. Nám-
skeiðin gengu mjög vel og fram und-
an eru fleiri námskeið vítt og breitt
um landið. Alls hafa um 400 manns
sótt námskeiðin til þessa í vetur.
Mikið er spurt um námskeiðin og
margir leggja fram óskir um að fá
félagsmálafræðslu á aðra staði en þá
sem búið er að ákveða.
Steinþór Torfason, bóndi að Hala
í Suðursveit, sótti námskeiðið sem
haldið var á Hrollaugsstöðum.
Hann segist hafa sótt félagsmála-
námskeið áður en á þessu hafi verið
kafað dýpra í alla þætti. Steinþóri
Námskeið í félagsmálum – Sýndu hvað í þér býr:
finnst nauðsynlegt að sækja nám-
skeið af þessu tagi og að það sé brýnt
að kunna til verka þegar kemur að
fundarsköpum. Steinþór segir að
það gefi öllum mikla öryggiskennd.
„Við vorum mjög ánægð með nám-
skeiðið á Hrollaugsstöðum. Mér
finnst sjálfum ekki nóg að sækja eitt
námskeið og ég ætla að vona að fleiri
slík standi manni til boða í fram-
tíðinni. Það er alveg ótrúlegt hvað
svona námskeið geta hjálpað manni.
Ég hef ekki verið mikill ræðumaður,
en eftir þátttöku á svona námskeiði
er maður sterkari á svellinu og
sjálfstraustið hefur aukist,“ sagði
Steinþór Torfason.
„Við erum hæstánægð með þátt-
tökuna á námskeiðunum til þessa.
Maður finnur fyrir miklum krafti í
fólkinu sem er mjög áhugasamt og
leggur sig fram. Það er létt yfir þátt-
takendum og í heild sinni hafa nám-
skeiðin verið vel heppnuð. Ég vil
bara þakka þátttakendum fyrir góð
EFLIR ÖRYGGISKENNDINA
kynni og óska þeim góðs gengis í
framtíðinni,“ sagði Sigurður Guð-
mundsson, leiðbeinandi á nám-
skeiðunum.
Áhugasömum er bent á að afla sér
frekari upplýsingar um verkefnið
hjá Guðrúnu Snorradóttur, lands-
fulltrúa UMFÍ, í síma 848-5917 og
á gudrun@umfi.is og Sigurði í síma
861-3379 og á sigurdur@umfi.is.
Þátttakendur
á námskeiði í
Þystilfirði.