Skinfaxi - 01.02.2009, Side 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Ungt fólk og lýðræði:
Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna:
Gaman að fi nna fyrir gleðinni og kraft inum
á ráðstefnunni
„Þetta var með allra skemmtilegustu dög-
um í vinnunni. Það var svo gaman að
finna fyrir þessari gleði og krafti sem
ríkti á ráðstefnunni. Þegar upp var stað-
ið var ráðstefnan mun betri en ég reikn-
aði með. Það sem kom mér einna mest
á óvart voru krakkarnir sem tóku þátt í
ráðstefnunni en það fylgdi þeim svo
mikill kraftur og gleði,“ sagði Margrét
María Sigurðardóttir, umboðsmaður
barna, en hún sat ráðstefnuna Ungt fólk
og lýðræði á Akureyri. Margrét María
sagði þingið hafa verið vel skipulagt og
UMFÍ til sóma.
„Það var svo sannarlega þörf á því að
halda ráðstefnu af þessu tagi. Það var
gaman að hitta það fólk sem kemur að
þessu viðfangsefni og vonandi verður
þetta upphafið að enn frekara samstarfi
okkar í milli,“ sagði Margrét María
Sigurðardóttir, umboðsmaður barna.
Sigríður Etna Marinósdóttir, ungmennaráði UMFÍ:
Ég lærði heilan helling og kynntist mörgum
„Mér fannst þessi ráðstefna frábær og
ótrúlega skemmtileg. Ég lærði heilan hell-
ing og kynntist mörgu fólki. Fyrir ráð-
stefnuna gerði ég mér svo sem engar sér-
stakar væntingar, en þegar upp var stað-
ið var þetta mikil og góð reynsla sem á
eftir að nýtast manni. Á ráðstefnunni
fann maður svo mikla hvatningu og það
var gaman að kynnast því hvað önnur
ungmennaráð eru að gera,“ sagði Sig-
ríður Etna Marinósdóttir sem var einn
þátttakenda á ráðstefnunni Ungt fólk og
lýðræði á Akureyri.
Sigríður Etna er í ungmennaráði
UMFÍ. Eftir áramótin settist hún á skóla-
bekk í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík,
en í haust hyggst hún taka upp þráðinn
að nýju við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri. Þar ætlar hún að klára stúdents-
prófið en hún á aðeins nokkrum eining-
um ólokið.
„Ég er fróðari um ýmis málefni sem
snúa að ungu fólki en ég var fyrir ráð-
stefnuna. Það má alveg segja með sanni
að þetta hafi verið kærkomin ráðstefna
þar sem málaflokkur, sem varðar ungt
fólk, er tekinn fyrir. Ég held að allir hafi
gott að því að sækja svona ráðstefnu,“
sagði Sigríður Etna.
Þátttakendur brutu upp ráðstefnuna með ýmsum hætti
og hér er brugðið á leik í hláturjóga.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, setur ráðstefnuna Ungt fólk og
lýðræði á Akureyri.
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra flytur ávarp við upphaf
ráðstefnunnar.