Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Fyrstu Vetrarleikarnir í Tindastóli fóru
fram helgina 27. febrúar til 1. mars sl.
og er óhætt að segja að helgin hafi
tekist vel. Sólskinsblíða og góða skapið
var alls staðar í Tindastólnum alla helg-
ina. Vetrarleikarnir hófust með skrúð-
göngu að Kirkjutorgi en þar var varð-
eldur og sungið og leikið, auk þess
sem leikarnir voru settir þar.
Snjóraftbátarnir voru vinsælir og ung-
ir sem fullorðnir þeyttust með þeim
niður brekkurnar. Fjallatívólíið sló í
gegn og rauðir, gulir, grænir og bláir
hópar skokkuðu á milli brauta.
„Upphafið á því að við hrintum þess-
um leikum af stað var að við vildum
kynna svæðið sem góðan kost til úti-
veru. Þeir sem alla jafna eru ekki á skíð-
um eða brettum hefðu þá tækifæri til
að komast upp í fjallið. Markmið okkar
var að fá fólk til okkar til að njóta úti-
verunnar og vera saman. Það var engin
keppni í gangi og markhópurinn í
byrjun var fjölskyldufólk sem við vor-
um afar ánægð með,“ sagði Pálína
Hraundal, verkefnisstjóri Vetrarleik-
anna í Tindastóli, í viðtali við Skinfaxa.
Pálína hafði veg og vanda af leikunum
Vetrarleikar í Tindastóli haldnir í fyrsta sinn:
Markmiðið að fá fólk til að
njóta útveru og vera saman
ásamt Viggó Jónssyni, staðarhaldara í
Tindastóli.
Mjög góð þátttaka
Þátttakan í leikunum var góð, en að
sögn Pálínu mættu um 250 manns í
lyftu og á leikana sjálfa á laugardegin-
um. Á kvöldvöku í reiðhöllinni á laugar-
dagskvöldið voru samankomnir yfir
300 manns. Þar sameinaðist skíða- og
hestafólk sem tókst í alla staði mjög
vel. Gestir leikanna komu flestir frá
Sauðárkróki og þéttbýlisstöðum í
grennd, en eitthvað var þó um fólk af
höfuðborgarsvæðinu.
„Ég held að óhætt sé að segja að
fyrstu leikarnir hafi heppnast mjög vel
og almenn ánægja sé meðal fólks. Ég
sé ekki annað en að Vetrarleikarnir séu
komnir til að vera og við stefnum að
því að halda aðra leika að ári. Það sem
kom mér einna helst á óvart var að
finna þennan mikla áhuga hjá fólki sem
hafði ekki stundað neina útivist fram
að þessu. Þessi hópur ætlar að mæta
á næsta ári,“ sagði Pálína Hraundal í
spjallinu við Skinfaxa.