Skinfaxi - 01.02.2009, Síða 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Héraðsþing HSK haldið á Hvolsvelli:
Starfið var þróttmikið á árinu
Um 100 manns mættu á 87. héraðsþing
HSK sem var haldið á Hvolsvelli 28. febrúar
sl. Þingið fór fram í Hvolsskóla þar sem
aðstæður voru allar hinar bestu og mót-
tökur heimamanna frábærar.
Á þinginu var lögð fram glæsileg árs-
skýrsla um starfsemi HSK á liðnu ári, skreytt
fjölda mynda. Í skýrslunni kemur fram að
starfið var þróttmikið á árinu, bæði innan
HSK og aðildarfélaga þess. Rekstur sam-
bandsins gekk mjög vel á síðasta ári. Met-
hagnaður varð af starfseminni sem mun
renna að mestu til söguritunar HSK.
Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
sæmdi Bolla Gunnarsson, fráfarandi gjald-
kera HSK, starfsmerki UMFÍ.
Miklar og góðar umræður fóru fram í
fjórum starfsnefndum þingsins og 20 til-
lögur voru samþykktar á þinginu. Sú tillaga
sem vakti hvað mesta athygli fjallar um HSK
og félög innan USVS en hún hljóðar svo:
„87. héraðsþing Héraðssambandsins Skarp-
héðins, haldið á Hvolsvelli 28. febrúar 2009,
samþykkir að fela stjórn HSK að vinna áfram
að þeim hugmyndum sem fram hafa komið
innan Ungmennasambands Vestur-Skafta-
fellssýslu að félög innan USVS gangi í
Héraðssambandið Skarphéðin.“ Með tillög-
unni fylgdi eftirfarandi greinargerð:
Áhugi er innan USVS að sameinast HSK.
Með tillögunni er lagt til að félögum innan
USVS verði gert kleift að ganga í HSK. Áður
en það getur gengið eftir þarf einnig að
liggja fyrir samþykki félaga innan USVS. ÍSÍ
og UMFÍ þurfa einnig að koma að málinu,
sbr. 6. grein íþróttalaga um skiptingu og
breytingu á íþróttahéruðum. Einnig þarf að
breyta 3. grein laga HSK þar sem sam-
bandssvæðið er skilgreint. Ef félög innan
USVS samþykkja að ganga í HSK er lagt til
að stjórn HSK verði veitt heimild til að veita
félögunum aðild að héraðssambandinu.
Lögum sambandsins verður síðan breytt á
næsta héraðsþingi, ef félögin í Vestur-
Skaftafellssýslu óska eftir að ganga í HSK.
Eftir umræður í nefnd og á þinginu var
tillagan samþykkt samhljóða.
Katrín Ösp Jónasdóttir, fimleikastúlka í
Umf. Selfoss, var kosin íþróttamaður HSK
árið 2008 en kjörið fór nú fram í 43. sinn.
Þetta er í fyrsta sinn sem fimleikamaður
hlýtur þessa nafnbót.
Gísli Páll Pálsson úr Íþróttafélaginu Hamri
í Hveragerði var endurkjörinn formaður sam-
bandsins. Bolli Gunnarsson, gjaldkeri HSK
sl. 10 ár, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og
var Hansína Kristjánsdóttir kosin í hans stað.
Bolla voru þökkuð frábær störf fyrir sam-
bandið en það stendur mjög vel og er
skuldlaust. Aðrir stjórnar- og varastjórnar-
menn voru endurkjörnir.
Stjórn HSK skipa:
Formaður: Gísli Páll Pálsson, Íþróttafélaginu
Hamri, gjaldkeri: Hansína Kristjánsdóttir,
Umf. Selfoss, ritari: Guðríður Aadnegard,
Íþróttafélaginu Hamri, varaformaður:
Ragnar Sigurðsson, Umf. Þór, meðstjórn-
andi: Bergur Guðmundsson, Umf. Selfoss.
Varamenn: Helga Fjóla Guðnadóttir, Hesta-
mannafélaginu Geysi, Fanney Ólafsdóttir,
Umf. Vöku, og Helgi Kjartansson, Umf.
Biskupstungna.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ,
sæmdi Bolla
Gunnarssyni,
fráfarandi
gjaldkera HSK,
starfsmerki
UMFÍ.
Aðalfundur Ungmennafélags Akureyrar:
Fjölgun iðkenda í yngri flokkum
Aðalfundur Ungmennafélags Akureyrar,
UFA, var haldinn í kaffiteríu íþróttahallarinn-
ar miðvikudaginn 18. febrúar sl. Á dagskrá
voru venjuleg aðalfundarstörf þar sem farið
var yfir starfið á liðnu ári og það sem fram
undan er. Einnig voru lagðar fyrir fundinn
minni háttar lagabreytingar. Viðurkenning-
ar voru veittar fyrir ástundun og árangur á
nýliðnu ári og að vanda var boðið upp á veit-
ingar.
Á aðalfundinum kom m.a. fram að iðk-
endum fjölgaði í yngri flokkum á síðasta
starfsári. Einnig var fjallað um Landsmótið
á Akureyri í sumar og ríkir almenn bjartsýni
og eftirvænting fyrir mótinu.
Ný stjórn UFA var kjörin á fundinum og
skipar hana eftirtalið fólk: Guðmundur
Víðir Gunnlaugsson, formaður, Svanhildur
Karlsdóttir, varaformaður, María Aldís
Sverrisdóttir, gjaldkeri, Arna Brynja Ragnars-
dóttir, meðstjórnandi, Hólmfríður Erlings-
dóttir, varamaður, Rannveig Oddsdóttir,
varamaður, og Una María Jónatansdóttir.
Frá verðlauna-
afhendingu á
aðalfundi UFA.
Frá vinstri:
Bjartmar Örnu-
son, Örn Dúi
Kristjánsson,
Agnes Eva
Þórarinsdóttir
og Bjarki Gísla-
son.