Skinfaxi - 01.02.2009, Page 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Aðalfundur Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags:
Fjögur gullmerki veitt í fyrsta skipti
Á aðalfundi Keflavíkur, íþrótta- og ung-
mennafélags, sem haldinn var 26. febrúar
sl., var Einar Haraldsson endurkjörinn for-
maður ásamt stjórn. Fjöldi viðurkenninga
var veittur en segja má að um tímamóta-
fund hafi verið að ræða á áttugasta afmælis-
ári félagsins.
Fjögur gullmerki voru veitt, í fyrsta skipti
í sögu félagsins. Þau voru veitt fyrir fimmtán
ára stjórnarsetu þeim Einari Haraldssyni,
Kára Gunnlaugssyni, Birgi Ingibergssyni og
Jónasi Þorsteinssyni, en allir eru þeir að
byrja sitt sextánda ár í stjórn og allir voru
þeir í stjórn áður en félagið sameinaðist
1994. Ólafur Rafnsson og Helga Guðrún
Guðjónsdóttir sáu um að næla merkin á
stjórnarmenn. Fjögur silfurmerki voru veitt,
en þau eru veitt fyrir tíu ára stjórnarsetu,
þeim Sveini Adolfssyni, aðalstjórn, Guðsveini
Ólafi Gestssyni, körfuknattleiksdeild, Grétari
Ólasyni, knattspyrnu- og körfuknattleiks-
deild, og Dagbjörtu Ýr Gylfadóttur, badmin-
tondeild. Tíu bronsmerki voru veitt, en þau
eru veitt fyrir fimm ára stjórnarsetu, þeim
Oddi Sæmundssyni, knattspyrnudeild,
Einari H. Aðalbjörnssyni, sund- og knatt-
spyrnudeild, Evu Björk Sveinsdóttur, Herdísi
Halldórsdóttur og Sveinbjörgu Sigurðar-
Fjórir einstaklingar fengu gullmerki Keflavíkur: Frá vinstri: Jónas Þorsteinsson,
Birgir Ingibergsson, Kári Gunnlaugsson og Einar Haraldsson. Hér eru þeir ásamt
Helgu G. Guðjónsdóttur, formanni UMFÍ, og Ólafi Rafnssyni, forseti ÍSÍ.
Helga G. Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
veitir Lilju Dögg Karlsdóttur starfsmerki.
dóttur, fimleikadeild, Guðmundi Jóni
Bjarnasyni, sunddeild, Ingunni Gunnlaugs-
dóttur og Kristjáni Þór Karlssyni, badmin-
tondeild, Eiríki Ásgeirssyni, skotdeild, og
Þóru Gunnarsdóttur, taekwondodeild.
Veitt voru tvö heiðursmerki úr silfri, þeim
Jóhanni Gunnarssyni knattspyrnudómara
og Kristni Óskarssyni körfuknattleiksdóm-
ara. Starfsbikarinn var veittur Birni Víkingi
Skúlasyni. Helga Guðrún Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ, sem var gestur fundarins,
sæmdi Lilju Dögg Karlsdóttur starfsmerki
UMFÍ.
Ársþing UMSS haldið á Hofsósi:
Ánægjulegt verkefni bíður Skagfirðinga
Fjölmennt ársþing Ungmennasambands
Skagafjarðar, UMSS, var haldið í Félags-
heimilinu Höfðaborg á Hofsósi 6. mars sl.
Sigurjón Þórðarson var endurkjörinn for-
maður UMSS og Sigurgeir Þorsteinsson í
stjórn sambandsins í stað Páls Friðrikssonar.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórnarmaður
UMFÍ og Sæmundur Runólfsson, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ, sóttu þingið. Steinunn
Hjartardóttir var sæmd starfsmerki UMFÍ.
Í máli Sigurjóns Þórðarsonar formanns
kom m.a. fram að til framtíðar litið sé mikil-
vægt að stjórn UMSS virki íþróttaráðin fyrr
og betur til þess að hvetja skagfirska íþrótta-
menn til þess að taka þátt í landsmótum
UMFÍ. Sigurjón sagði ennfremur að á kom-
andi sumri biði Skagfirðinga ánægjulegt
verkefni sem er að halda Unglinga landsmót
á Sauðárkróki. Á Sauðárkróki er góð aðstaða
til keppni í öllum íþróttum sem venja er að
keppt sé í á Unglingalandsmótum. Á Sauð-
árkróki er einnig öflugur hópur fólks sem
hefur góða æfingu í að skipuleggja og hafa
umsjón með íþróttakeppni.
Helsta nýbreytnin í starfi UMSS var starf-
ræksla frjálsíþróttaskóla í samráði við UMFÍ
sem tókst afar vel. Fráfarandi framkvæmda-
stjóri, Alda Haraldsdóttir, hélt með sóma
utan um skólann og var hann rekinn réttu
megin við núllið. Gunnar Sigurðsson frjáls-
íþróttaþjálfari hafði yfirumsjón með þjálfun
og var almenn ánægja með þjálfunina hjá
frjálsíþrótta krökkunum sem sóttu Sauðár-
krók heim.
Þess má og geta að Kaup félag Skagfirð-
inga veitti sambandinu myndarlegan styrk
til kaupa á samkomutjaldi og er einn af
kjölfestustyrktaraðilum að Unglingalands-
móti UMFÍ á Sauðárkróki næsta sumar.
Frá ársþingi
UMSS sem haldið
var á Hofsósi.
Frá vinstri: Sigur-
jón Þórðarson,
formaður UMSS,
Helga G. Guðjóns-
dóttir, formaður
UMFÍ (í ræðu-
stóli), og Steinunn
Hjartardóttir sem
fékk starfsmerki
UMFÍ.