Skinfaxi - 01.02.2009, Side 33
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33
Hann hefur átt stóran þátt í því að koma liði sínu í
hóp þeirra bestu og verið félagi sínu góð fyrirmynd
bæði innan vallar sem utan. Á liðnu tímabili var
hann sem fyrr í lykilhlutverki með liði sínu og í hópi
bestu leikmanna úrvalsdeildar þar sem hann var
m.a. stigahæsti leikmaður deildarinnar í einkunna-
gjöf fjölmiðla. Í kjölfarið var hann valinn í A-lands-
lið karla í knattspyrnu og lék þrjá leiki með liðinu í
haust og stimplaði sig þar rækilega inn sem aðal-
markvörður liðsins. Linda Björk hefur bætt árangur
sinn sem frjálsíþróttakona jafnt og þétt og er
komin í hóp þeirra bestu. Linda Björk varð Íslands-
og bikarmeistari í alls sjö greinum utan- og innan-
húss auk þess sem hún sigraði í fjölmörgum öðrum
mótum. Hún er einn albesti sprett- og grindahlaup-
ari landsins og átti sem fyrr fast sæti í landsliði
Íslands. Gunnleifur og Linda Björk voru valin úr hópi
37 íþróttamanna sem fá viðurkenningu ÍTK eftir
tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.
Helga Margrét íþróttamaður
USVH
Helga Margrét Þorsteinsdóttir,
frjálsíþróttakona í USVH, var kjörin
íþróttamaður USVH fyrir árið 2008 og
hlaut hún alls 81 stig. Lóa Dís Más-
dóttir körfuboltakona varð í öðru
sæti með 21 stig. Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir körfuboltakona hafn-
aði í þriðja sæti með 15 stig. Þess má geta að Helga
Margrét var einnig kjörin íþróttamaður USVH
2007. Helga Margrét hlaut yfirburðakosningu og
er vel að titlinum komin. Hún keppti í mörgum
greinum á árinu og bætti mörg met. Íslandsmet
setti hún í fimmtarþraut stúlkna, U20, U22 og í
kvennaflokki. Þá setti hún Íslandsmet í kúluvarpi
innanhúss í flokki stúlkna og ungkvenna. Helga
setti einnig Íslandsmet í flokki stúlkna og ung-
kvenna í 60 m grindahlaupi og 200 m hlaupi inn-
anhúss. Þá var Helga á faraldsfæti og keppti
erlendis á nokkrum mótum. Hún varð Norðurlanda-
meistari í fjölþraut þegar hún sigraði í sjöþraut 17
ára og yngri. Enn eitt Íslandsmetið setti hún svo í
sjöþraut á sterku móti í Tékklandi. Þá keppti hún á
Heimsmeistaramóti 19 ára og yngri í sjöþraut sem
fram fór í Póllandi og hafnaði þar í 7. sæti. Helga
keppti einnig á Norðurlandamóti unglinga sem fór
fram í Noregi og náði 4. sæti í 400 m hlaupi.
Arna og Hjalti Valur
íþróttamenn Hveragerðis
Viðurkenningin íþróttamaður Hvera-
gerðis 2008 var veitt þeim Örnu
Hjartardóttur fimleikakonu og Hjalta
Val Þorsteinssyni körfuknattleiks-
manni á hátíðarathöfn sem fór fram í
Listasafninu 30. desember sl. Um 70
manns sóttu samkomuna. Birkir
Sveinsson, formaður íþrótta- og tómstundanefndar,
stýrði samkomunni en nefndin sér um val á íþrótta-
manns ársins í Hveragerði.
Vignir Þröstur íþróttamaður
Garðabæjar
Vignir Þröstur Hlöðversson, blakmaður í Stjörn-
unni, er íþróttamaður Garðabæjar 2008. Vignir leiddi
lið sitt til sigurs í öllum keppnum á síðasta tímabili.
Liðið vann deildina nokkuð örugglega og varð bikar-
meistari í sjötta sinn í röð eftir sigur-
leik við KA. Liðið varð Íslandsmeist-
ari eftir mjög spennandi leiki við
Þrótt þar sem úrslitin réðust í odda-
leik. Stjarnan hefur unnið 17 af síð-
ustu 18 titlum í blaki á 6 ára tímabili
undir stjórn Vignis Hlöðverssonar en hann hefur
verið fyrirliði liðsins og þjálfari undanfarin ár.
Vignir er þeim kostum gæddur að getað spilað
hvaða stöðu sem er. Hann er góð fyrirmynd í hreyf-
ingunni og sönnun þess að allt er hægt ef viljinn er
fyrir hendi.
Sveinn Elías afreksmaður
Fjölnis
Sveinn Elías Elíasson var valinn
afreksmaður Fjölnis 2008. Sveinn Elías
átti gott ár þrátt fyrir þrálát meiðsli og
afrekaði ýmislegt. Hann setti m.a.
Íslandsmet í 400 metra hlaupi karla og
varð Norðurlandameistari unglinga
18–19 ára í tugþraut. Sveinn Elías setti
Íslandsmet unglinga 19–20 ára í 200 m hlaupi og
einnig Íslandsmet í unglingaflokki 19–22 ára í
stangarstökki. Sveinn Elías var í boðhlaupssveit
Fjölnis sem setti Íslandsmet í 4x400 m hlaupi.
Nína Björk og Kristján Þór
íþróttafólk Mosfellsbæjar
Tveir golfíþróttamenn, Nína Björk
Geirsdóttir og Kristján Þór Einars-
son, bæði í Golfklúbbnum Kili, voru
valin íþróttakona og íþróttamaður
ársins 2008 í Mosfellsbæ. Íþrótta- og
tómstundanefnd Mosfellsbæjar velur verðlauna-
hafa eftir tilnefningar frá íþróttafélögum í Mosfells-
bæ. Nína Björg hefur verið í hópi fremstu kvenkylf-
inga um nokkurt skeið. Hún varð klúbbmeistari
Kjalar 2008 og á Íslandsmótinu í höggleik lenti hún
í öðru sæti. Kristján Þór varð Íslandsmeistari í högg-
leik og hafnaði í öðru sæti á stigalista Kaupþings-
mótaraðarinnar. Báðir þessir kylfingar hafa með
þessum afrekum sínum sýnt að þeir eiga mikla
möguleika á að ná enn lengra í íþrótt sinni.
Þrjár konur í efstu sætunum á
Akureyri
Rakel Hönnudóttir, knattspyrnu-
kona í Þór/KA, er íþróttamaður Akur-
eyrar 2008. Önnur í kjörinu var Dagný
Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í
Skíðafélagi Akureyrar, og í þriðja sæti
var Bryndís Rún Hansen, sundkona
í Óðni. Sú niðurstaða að konur lentu í þremur efstu
sætum í kjöri til Íþróttamanns Akureyrar er einstök
í akureyrskri íþróttasögu. Þetta hefur aldrei gerst
áður og raunar er ekki vitað til að það hafi áður
gerst hér á landi við útnefningu íþróttamanns ársins
að konur væru í þremur efstu sætunum. Fjórtán
aðildarfélög Íþróttabandalags Akureyrar tilnefndu
íþróttamenn úr sínum röðum til kjörs íþróttamanns
Akureyrar 2008. Stjórn ÍBA og fulltrúar fjölmiðla á
Akureyri kusu síðan íþróttamann Akureyrar úr þess-
um hópi glæsilegra íþróttamanna.
Bjarki íþróttamaður Borgar-
fjarðar
Á árlegri íþróttahátíð UMSB, sem fór
fram 7. febrúar sl., var kynnt kjör
íþróttamanns Borgarfjarðar 2008
og var golfarinn Bjarki Pétursson
efstur í kjörinu. Í öðru sæti varð
íþróttamaður Borgarfjarðar 2007,
körfuboltamaðurinn Sigurður Þórarinsson, og í
þriðja sæti systir hans, Þórkatla Dagný Þórarins-
dóttir sundkona. Bjarki er einn af efnilegustu kylf-
ingum landsins. Hann hefur keppt á mótum innan-
lands og erlendis á árinu og hefur staðið sig fram-
úrskarandi vel. Sem helsta árangur hans á mótum
innanlands má nefna að hann sigraði á vormóti
Sahara án forgjafar og einnig í SPM-mótaröðinni án
forgjafar. Bjarki hafnaði síðan í 4. sæti á opna Omnis–
mótinu. Bjarki sigraði einnig á einu móti í Kaup-
þingsmótaröðinni í flokki 13–14 ára stráka, hafnaði
tvisvar sinnum í öðru sæti í sömu mótaröð og einu
sinni í því fjórða. Bjarki var valinn til að keppa fyrir
Íslands hönd á Young British Open og hafnaði þar í
sjöunda sæti í sínum aldursflokki og með því varð
hann efstur allra kylfinga frá Norðurlöndum í sínum
flokki. Bjarki var valinn í landslið Íslands 15 ára og
yngri á árinu. Hann hefur tekið þátt í innra starfi
félagsins af miklum krafti og hefur verið afar dug-
legur við æfingar, bæði sínar eigin og við að æfa aðra
unglinga og hvetja þá áfram til afreka í íþrótt sinni.
TRADE
MARK