Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 35
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Akureyri 9. – 12. júlí 2009
Sauðárkróki 31. júlí – 2. ágúst 2009
Aðalfundur Félags áhugafólks um
íþróttir aldraðra, FÁÍA, var haldinn í
þjónustumiðstöð Ungmennafélags
Íslands 14. febrúar sl. UMFÍ hefur ver-
ið í samstarfi við FÁÍA síðustu ár. Félag-
inu var úthlutuð aðstaða í þjónustu-
miðstöð UMFÍ þar sem stjórn þess
hittist á vikulegum fundum. Tilgangur
FÁÍÁ er að vinna að vellíðan aldraðra
með iðkun leikfimi, sunds og annarra
íþrótta, stuðla að menntun leiðbein-
enda, útbreiða íþróttir og stuðla að
framkvæmd rannsókna um heilsu-
fræðilegt gildi íþróttaiðkana aldraðra
og afla niðurstaðna slíkra rannsókna
og kynna þær.
Á aðalfundinum voru 90 ára félagar
heiðraðir og harmonikkuspil, einsöng-
ur, upplestur og fleira var á dagskrá.
Ný stjórn FÁÍA er skipuð eftirtöld-
um: Guðrún Nielsen, formaður, Ernst
Backman, Hjörtur Þórarinsson, Soffía
Stefánsdóttir, en Ólöf Þórarinsdóttir
hætti og Þórey Guðmundsdóttir kem-
ur í hennar stað.
Líflegt starf hjá Félagi áhuga-
fólks um íþróttir aldraðra