Skinfaxi - 01.02.2009, Blaðsíða 37
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 37
Ungmennafélag Íslands tók fyrsta
skrefið með verkefnið Gæfuspor í
fyrrasumar. Gæfuspor er verkefni þar
sem fólk 60 ára og eldra er hvatt til
að fara út og ganga sér til ánægju og
heilsubótar. Verkefnið hófst á fimm
stöðum á landinu, í Borgarnesi,
Reykjanesbæ, Neskaupsstað, á Sel-
fossi og Sauðárkróki. Sparisjóðirnir
eru aðalsamstarfsaðili UMFÍ við verk-
efnið.
Hver hópur ákveður hve oft og
hvaðan er gengið og eins getur fólk
valið sér tíma og staði eins og því
hentar. Aðalatriðið er að fara út að
ganga á eigin forsendum, sér til
ánægju, í góðum hópi vina og félaga.
Að sögn Ómars Braga Stefánsson-
ar, landsfulltrúa UMFÍ, er alla jafna
góð þátttaka á Sauðárkróki. Þar kem-
ur gönguhópur saman tvisvar í viku
og eru þátttakendur stundum allt
upp í 50 talsins. Mjög mikil ánægja
ríkir með þetta verkefni og þátt-
takendur fá mikið út úr því að hitt-
ast og ganga sér til heilsubótar.
Á Selfossi hittist hópur alla þriðju-
daga og gengur í einn og hálfan tíma.
Hjörtur Þórarinsson, einn göngugarp-
anna, segir almenna ánægju með þetta
verkefni. Hópurinn finnur sér gott
göngusvæði rétt fyrir utan bæinn og
er passað upp á það að ávallt sé
gengið undan vindi, engin hálka
og lítil umferð á göngusvæði. Þátt-
takendur fara með rútu sem fylgir
hópnum eftir.
Góð þátttaka í Gæfuspori