Skinfaxi - 01.02.2009, Page 39
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 39
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona
í HSÞ, hefur skipað sér á bekk meðal
fremstu frjálsíþróttamanna landsins.
Hafdís hefur sýnt miklar framfarir á
síðustu misserum, en aðalkeppnisgrein-
ar hennar eru langstökk og 200 og 400 m
hlaup. Hafdís er búsett á Akureyri og
æfir þar undir handleiðslu Gísla Sig-
urðssonar. Hafdís hefur verið áberandi
á innanhússmótunum í vetur, náð þar
góðum árangri og sýnt það og sannað
að hér er á ferð vaxandi íþróttamann-
eskja sem vert er að fylgjast með í fram-
tíðinni.
Skinfaxa lék forvitni á að skyggnast
örlítið inn í heim Hafdísar og innti hana
eftir því hvernig áhuginn á frjálsum
íþróttum hefði kviknað.
„Ég byrjaði tiltölulega ung að árum,
en báðar eldri systur mínar æfðu og
kepptu í frjálsum íþróttum á sínum tíma.
Ætli ég hafi ekki verið um sex ára gömul
þegar ég byrjaði að elta systur mínar á
æfingar og kringum 12 ára aldurinn fór
ég að keppa fyrir alvöru á meistaramót-
unum fyrir sunnan. Ég æfði á heimaslóð-
um mínum á Laugum. Þá voru aðstæð-
ur allt aðrar en þær eru í dag. Ég varð
fyrir því óláni að slíta sin frammi í
hnénu 12 ára gömul, en náði mér á strik
og eftir það hef ég verið óslitið í frjáls-
um íþróttum,“ sagði Hafdís.
Aðalgrein Hafdísar er langstökk en
hún segist hlaupa líka og þá einkum 200
og 400 m hlaup innanhúss. Þegar kemur
að keppni utanhúss hleypur hún 100 m
hlaup.
Aðspurð um hvaða aðstæður hún hafi
þurft búa við fyrir norðan segir hún þær
ekki hafa verið beysnar þegar hún var í
sveitinni. Á Laugum æfði hún á malar-
brautum en í dag eru komnar þar topp-
aðstæður, fyrir Unglingalandsmótið
2006 voru brautirnar lagðar gerviefni.
„Þegar ég var á Laugum æfði ég bara
tvisvar í viku og á veturna inni í íþrótta-
húsinu. Þar var erfitt að hlaupa en ég
lagði í staðinn áherslu á stökk án atrennu
og þrekæfingar. Auðvitað kom það upp
í hugann að fara suður og æfa. Í dag er
ég með frábæran þjálfara og undir hand-
leiðslu hans hef ég náð góðum árangri
og ég treysti honum fullkomlega. Ég æfi
eingöngu á Akureyri og á því verður ekki
breyting á næstunni.“
Frjálsar íþróttir
eru lífið mitt
í dag
– Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér?
„Maður stefnir alltaf hærra. Ég set
mér auðvitað markmið og reyni að ná
þeim eins og ég mögulega get. Núna hef
ég sett mér ákveðin markmið fyrir sumar-
ið og þau eru m.a. að komast á Evrópu-
mót 20–22 ára í langstökki og fara með
landsliðinu í keppnisferðir erlendis.
Fram undan þar er Evrópubikarkeppnin
og Smáþjóðaleikarnir. Ég legg áherslu á
langstökkið, en auðvitað er takmarkið
líka að hlaupa hraðar, en stefnan er að
stökkva vel yfir sex metrana í langstökk-
inu,“ sagði Hafdís.
Þess má geta að Hafdís jafnaði innan-
hússmetið í flokknum 19–22 ára sem er
6,02 m. Sunna Gestsdóttir á hins vegar
bæði metin, innan- og utanhúss, í full-
orðinsflokki. Markmið Hafdísar er að
bæta þessi met í framtíðinni.
Hafdís segir að með tilkomu frjáls-
íþróttahallarinnar í Laugardal og upp-
byggingu frjálsíþróttavalla í tengslum
við Unglingalandsmótin hafi orðið mikil
framför hér á landi. Sú uppbygging hef-
ur verið mikil hvatning fyrir börn og ungl-
inga til að hefja æfingar í frjálsum íþróttum.
„Það voru mikil forréttindi að fá þess-
ar aðstæður í Laugardal en samfara þeim
urðu æfingar mun auðveldari. Maður
bara bíður og vonar að einhvern tímann
rísi svona höll norðan heiða. Það verða
algjör umskipti hvað aðstöðuna varðar
þegar nýr völlur utanhúss verður tekinn
í notkun á Akureyri í sumar.“
– Hvað hafa frjálsar íþróttir gefið þér?
„Það er svo margt. Frjálsar íþróttir
eru lífið mitt í dag og maður hugsar oft
um það hvað maður væri gera ef frjálsar
íþróttir hefðu ekki komið til. Þær gefa
manni svo mikið, efla sjálfstraust og
góðan félagsskap. Þetta er bara á allan
hátt hrikalega skemmtilegt. Ég hvet hik-
laust alla krakka til æfa frjálsar íþróttir.
Þessi grein er svo uppbyggjandi á allan
hátt.“
– Sérðu fyrir þér að þú eigir eftir að
verða í mörg ár í frjálsum íþróttum?
„Já, eins lengi og ég mögulega get.
Tek mér kannski hvíld þegar ég eignast
börn og svo held ég áfram. Á meðan
líkaminn leyfir held ég ótrauð áfram.
Maður veit aldrei hvað gerist, en ég
vona að ég geti verið sem lengst í þessu
og náð mínum besta árangri,“ sagði
Hafdís Sigurðardóttir, hress í bragði.
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttakona í HSÞ: