Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.01.1940, Qupperneq 10

Ægir - 01.01.1940, Qupperneq 10
4 & G I R Þessir árgangar eru nú farnir a'ð láta bera mikið á sér í vertíðaraflanum, en þylcja elcki reynast jafnsterkir og menn höfðu vænst. í vertíðaraflanum í Kefla- vík voru 49.4% af lóðafiskinum 8—9 ára, en 49.5% af netjafiskinum. Af lóðafisk- inum voru 23.6% yngri en 8 ára og 10.8% af netjafiskinum. I Vestmannaeyjum gerði 8—9 ára fiskurinn 52.2% af lóða- fiskinum og 44.2% af netjafiskinum. Af lóðafiskinum voru 12% yngri en 8 ára og' 4.1% af netjafiskinum. Á Akranesi voru 56.9% af vertíðaraflanum 8—9 ára fiskur. Langmest ber á fiski, sem er í upp- vexti, í kalda sjónum. Þannig var 71.4% af aflanum á Flateyri yngri en 8 ára, 97% á Siglufirði, 93.5% í Norðfirði og 90% af togaraaflanum. f Hornafirði voru 70.4% af aflanum yngra en 8 ára. Af þessum ungfiski ber mest á 5 ára fiski, eða árgangnum 1934, en liann virðist vera mjög sterkur. Þá ber einnig nokk- uð á 3 og 4 ára fiski. Þess er ekki að vænta, að árgangurinn 1934 geri að ráði vart við sig í vertiðaraflanum fyrr en 1942. Fiskifélagi íslands bárust alls á árinu 85 merki úr fiski og voru þar af 61 merki iir þorski merktum við Grænland. Eru það fleiri Grænlandsmerki en nokkru sinni bafa borizt fyrr á einu ári. Það maétti því ætla, að gengd af Grænlands- þorski til fslands hafi verið mjög mikil árið 1939. Frá Vestmannaeyjum gengu alls 83 bátar til fiskveiða á vertíðinni. Voru þar af 74 bátar yfir 12 lestir og 9 minni bát- ar, með samtals 725 manna áhöfn. Er þetta 12 bátum yfir 12 lestir og 2 minni en 12 lestir fleira en síðastl. ár. Arsafli 5199 smálestir (5 729). Vertíðin i Vestmannaeyjum var tals- vert lakari en fvrra ár, sem glöggt má sjá á aflamismuninum og ekki sízt, ef á það er litið, a'ð bátarnir voru 14 fleiri, er vei'ðar stunduðu, en 1938. í janúar og febrúar aflaðist lítið, enda voru gæftir þá heldur stopular. Framan af marz voru einnig stirðar gæftir og lítill afli. Þann 21. marz gerði foraðsveður og urðu Eyjaskeggjar þá almennt fyrir miklu veiðarfæratjóni. Er veðrinu slot- aði varð sæmileg veiði og hélzt út mán- uðinn. En mestur varð aflinn í páskavik- unni og fiskaði aflaliæsti báturinn þá um 90 skpd. En þrátt fyrir það, að góð- viðri liéldust, aflaðist þó heldur lítið það sem eftir var mánaðarins. Nokkrir bátar, er sóttu á Selvogsbanka, öfluðu þó sæmilega. — Hæstir hásetahlutir urðu röskar 1400 kr. Margir bátar stunduðu dragnótaveiðar í maímánuði og öfluðu dável, einkum smálöngu. Um haustið stunduðu allmargir bátar veiðar og fiskuðu þeir bæði með línu og dragnót. Aflaðist sæmilega og var megn- ið af aflanum selt í togara. 1 bvrjun vertiðar var fiskur í horaðra lagi, en í marzlok mjög stór og feitur. Eins og nokkur undanfarin ár voru gerð- ar mælingar á fiski, stærð hans og at- hugað lifrarmagn. Eins og fvrr er miðað við 700 kg af fiski upp úr sjó (með inn- ýflum), en talið er, að úr því fiskmagni fáist 1 skpd. af barðþurrkuðum fiski, sem ætlaður er á Suður-Ameríkumark- aði eða til Portúgal. Úr 700 kg af fiski fengust: 31. jan................ 91 fiskur 43 litr. lifur. 28. febr................ 88 — 43 — 15. marz .............. 74 — 37 — — 22. marz .............. 67 — 45 — — 30. marz .............. 55 — 59 — — 8. apríl .............. 67 — 40 — — 15. april ............. 64 — 42 — — 20. apríl ............. 82 — 42 — — 29. aprii .............. 61 — 58 — —

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.