Ægir - 01.01.1940, Page 15
9
Æ G I R
Frá Stapa gengu 10 opnir vélbátar
með 40 menn, og er það 3 bátum fleira
en síðastl. ár. Ársafli 31 smál. (51).
Frá Hjallasandi gengu 3 þiljaðir vél-
bátar minni en 12 lestir, 12 opnir vél-
bátar og 3 róðrarbátar, með samtals 96
mönnum. Er þetta einum róðrarbát
færra en árið áður. Framan af vertíð afl-
aðist vel, en seinni helming febr. voru
gæftir mjög stopular. í byrjun apríl var
mjög góð veiði, en um miðjan mán-
uðinn tók alveg fyrir liana og veiddist
ekkert til mánaðarloka, og var róðrum
þá hætt að mestu levti. Ársafli 284 smál.
(271).
Úr Ólafsvík gengu 11 bátar, með sam-
tals 70 skipverja. Þar af voru 9 opnir vél-
bátar, 1 vélbátur minni en 12 lestir og 1
árabátur. Er þetta tveim bátum fleira en
fyrra ár. -— Afli var talinn góður fyrri
hluta vertíðar, en dróg mjög úr honum
um hana miðja. í byrjun apríl glæddist
veiði á ný og fiskaðist þá svo mikið, að
ekki hefir jafngott verið mörg undan-
farin ár. Róðrar voru svo að segja hættir
í aprillok. — Veiðar voru stundaðar allt
haustið, og var allur aflinn seldur í
hraðfrystihúsið og togara. Ársafli 267
smál. (261).
Frá Stykkishólmi og Grundarfirði
gengu 1 vélbátur stærri en 12 lestir, 3
minni, 14 opnir vélbátar og 1 róðrarbát-
ur, með samtals 66 menn. — Snemma
vors aflaðist vel. Um haustið mátti heita
allsæmileg veiði og var megnið af aflan-
um selt í hraðfrystihúsið. Hæstu há-
setahlutir yfir haustvertíðina munu hafa
orðið um 250 kr. nettó.
Vestfirðingafjórðungur.
Vetrarvertíð á Vestfjörðum var mjög
góð fvrri hluta vetrar og mun mega telja
vetraraflann yfirleitt i meira lagi. Vor-
vertíðin varð endaslepp, vegna þess
að beituskortur varð siðari hluta henn-
ar. — Snemma vors veiddist talsvert af
síld á ísafirði, eða alls um 1500 tn. Mest
af þessari sild var selt til beitu. Um haust-
ið var einnig nokkur síldveiði i Dýra-
firði.
Haustvertíð varð með bezta móti, þvi
að gæftir voru óvenju góðar. Megnið af
aflanum var selt togurum til útflutnings.
Fiskimenn á Vestfjörðum munu ekki í
mörg ár hafa fengið jafnmikið til hlutar
á haustvertíð sem að þessu sinni. — Þeg-
ar litið er á skýrslu nr. 1, sést að ársafl-
inn í Vestfirðingafjórðungi er ýfið minni
nú en í fyrra. En á það ber að líta, að
allur haustaflinn 1938 var saltaður, en
að þessu sinni ekkert af honum svo telj-
andi sé.
Úr Flatey og Bjarneyjum gengu 10 bát-
ar, með 36 menn. Einn af þeim var yfir
12 lestir, en hinir opnir vélbátar. Er
þetta 3 opnum vélbátum færra en síð-
astl. ár. Ársafli 56 smál. (49).
Úr Víkum gengu 15 opnir vélbátar með
48 mönnum; er það 2 vélbátum færra en
1938. Fyrri hluta vors aflaðist þar mjög
vel, en um mitt sumarið hömluðu storm-
ar sjósókn. Ársafli 113 smál. (109).
Úr Patreksfirði gengu 11 skip, með
samtals 107 menn. Þar af voru 2 togarar,
1 vélbátur minni en 12 lestir og 8 opnir
vélbátar. Er þetta þiljubátnum og 3 opn-
um vélbátum fleira en árið áður. Þar
var ágætur afli á trillur fyrri hluta vors
og framan af sumri. Um haustið var
einnig góður afli og voru stundaðir róðr-
ar á smábáta fram í desember, en slíkt
er óvanalegt. Smábátaútgerð er nú tals-
vert að færast aftur í aukana, og er árs-
afli opnu vélbátanna talinn 156 smál., og
þykir það ágætur afli. — Togararnir
stunduðu saltfiskveiðar síðari hluta vetr-
ar, en karfaveiðar um sumarið. Um