Ægir - 01.01.1940, Síða 18
12
Æ G I R
Framan af sumri var lengst af fisktregða,
og var þá oft erfitt að ná í beitu, því að
fiskurinn lét mjög illa við freðbeitunni
frá fyrra ári, einkum eftir að loðna og
síli hafði fengizt og verið beitt. — Þegar
kom fram undir mitt sumarið, hættu
flestir stærri bátarnir þorskveiðum og
bófu síldveiði, en í (austur-verstöðvun-
um var þorskveiðum lialdið áfram og
aflaðist víðast sæmilega. — Nokkrir bát-
ar úr Eyjafirði og Siglufirði stunduðu
grálúðuveiðar um tíma, en talið er, að
þær veiðar hafi gefið lítinn arð. — Fjöldi
báta stundaði dragnótaveiðar bæði haust
og vor. Öfluðu sumir þeirra ágæt-
lega, en aðrir miður, eins og gengur. —
Eftir að sildveiðunum lauk fóru nokkr-
ir bátar á þorskveiðar aftur, en veiði var
frekar lítil, eða mun minni en á sama
tíma síðastliðið ár.
Frá Skagaströnd og Kálfshamarsvík
gengu 6 opnir vélbátar og 1 þiljaður bát-
ur, með samtals 25 menn. Er það 4 ára-
bátum færra en fyrra ár, en þá var þar
enginn þilbátur. Arsafli 85 smál. (74).
Frá Sauðárkróki gengu 6 opnir vél-
bátar og 1 þiljaður bátur, með alls 26
menn. Er það 5 árabátum færra en árið
áður, en 1 þilbát fleira. Ársafli 32 smál.
(63).
Frá Höfðaströnd gengu 8—10 opnir
vélbátar með 24 menn. Margir bátanna
stunduðu ekki veiðar nema örstuttan
tíma. Er það 4 árabátum færra en síð-
astliðið ár. Ársafli 60 smál. (107).
Or Siglufirði gengu 3 vélbátar stærri
en 12 lestir, 1 minni og 6 opnir vélbátar,
með samtals 21 mann. Er það 1 þiljuð-
um bát fleira en síðastl. ár. Stóru bát-
arnir stunduðu aðeins veiðar stuttan
tima um vorið. Trillubátarnir voru
einnig skamman tíma við veiðar, og
seldu megnið af aflanum til nevzlu i
bænum. Ársafli 113 smál. (175).
0r Ólafsfirði gengu 41 bátur, með sam-
tals 110 menn. Þar af voru 3 vélbátar
stærri en 12 lestir, 13 minni og 25 opnir
vélbátar. Er það 1 bát færra en fyrra ár.
Um mitt sumarið stunduðu trillurnar að-
eins þorskveiðar, en stærri bátarnir
voru þá allir við síldveiði. Ársafli 528
smál. (764).
Úr Dalvík gengu 3 vélbátar stærri en
12 smál., 8 minni og 4 opnir vélbátar,
með samtals 50 menn. Er það 1 stórum
vélbát fleira, en 1 vélbát minni en 12 1.,
4 trillum og 3 árabátum færra en árið
áður. Þilbátarnir stunduðu allir sild-
veiðar. Ársafli 314 smál. (407).
Or Hrísey gengu 1 línuveiðagufuskip,
8 vélbátar minni en 12 lestir og 3 opnir
vélbátar, með samtals 49 menn. Línu-
veiðarinn gekk þaðan ekkert á þorsk-
veiðar síðastl. ár og nú aðeins stuttan
tíma. Annars var 1 þilbát fleira en fyrra
ár, en 1 trillu færra. Ársafli 173 smál.
(289).
Frá Árskógsströnd gengu 4 vélbátar
minni en 12 lestir og 4 opnir vélbátar,
með alls 45 menn. Er það 1 opnum vél-
bát fleira en árið áður. Ársafli 177 smál.
(236).
Frá Akureyri og nágrenni gengu marg-
ir opnir vélbátar, en ekki er vitað um
tölu þeirra með vissu. Seldu þeir afla
sinn eingöngu til neyzlu í bænum og nær-
sveitunum.
Frá Hjalteyri gengu 7 opnir vélbátar
og 1 árabátur, með samtals 14 menn.
Ársafli 28 smál.
Or Grýtubakkahreppi gengu 6 vélbát-
ar minni en 12 lestir og 4 opnir vélbátar,
með samtals 34 menn. Er það 2 þilbát-
um og 2 trillubátum færra en fyrra ár.
Ársafli 306 smál. (388).
Or Flatey gengu 3 vélbátar minni en
12 lestir og 8 opnir vélbátar, með sam-
tals 31 mann. Síðastl. ár gekk enginn þil-